136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[14:25]
Horfa

Frsm. minni hluta viðskn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni fyrir ágæta ræðu þó að ég sé ekki sammála öllum þeim sjónarmiðum sem þar komu fram.

Mig langar til þess að spyrja hv. þingmann í tilefni af orðum hans um þá breytingartillögu sem meiri hluti viðskiptanefndar hefur flutt, hvort hann sé ósammála því mati Jóns Daníelssonar, prófessors við London School of Economics, sem koma fram í Viðskiptablaðinu í morgun að um væri að ræða verulega breytingu á hlutverki peningastefnunefndar og að með þessari breytingu væri verið að íþyngja þeim aðilum sem sitja í nefndinni með óskyldu upplýsinga- og viðvörunarhlutverki sem muni draga úr skilvirkni hennar.

Ég er að velta fyrir mér, vegna þess að það hefur ekki verið alveg ljóst af hálfu talsmanna meiri hlutans, stjórnarflokkanna og Framsóknarflokksins, hvort um er að ræða mjög mikilvæga breytingartillögu eða breytingartillögu sem sé bara til áréttingar því sem þegar er fyrir hendi í lögum.