136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[15:21]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég á nú erfitt með að taka undir það sem kom fram í upphafi andsvars hv. þingmanns um að það skipti ekki máli hvort það sé Jón eða Gunna sem semja (GAK: Efni textans.) efni textans. Það skiptir auðvitað verulegu máli fyrir okkur þingmenn þegar við fjöllum um lagafrumvörp að fá upplýsingar um það frá höfundum frumvarpanna hvað býr að baki þeirri niðurstöðu sem þeir komust að. Ég trúi ekki öðru en að hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson sé sammála mér um það, sérstaklega þegar í húfi er endurreisn fjármálakerfisins. Ný lög um Seðlabankann eiga að vera hluti af þeirri endurreisn.

Þegar við fjöllum um slíka endurreisn og hagsmuni sem þar eru í húfi er það lágmarkskrafa að menn fái upplýsingar um það hverjir sömdu frumvarpið og hvaða sjónarmið lágu þeirri samningu að baki. Þá þýðir ekkert að bera það á borð að það skipti ekki máli hvort það hafi verið Jón eða Gunna sem komu að þeirri vinnu.

Ég geri kröfu til þess að þegar menn semja ný frumvörp um Seðlabanka Íslands við endurreisn fjármálakerfisins, liggi það fyrir hverjir hafi unnið að þeirri samningu. Ég vona að hv. þingmaður, sem er með lengri þingreynslu en ég, geti tekið undir þau meginsjónarmið þó að við séum ekki í sama flokki.

Varðandi bráðabirgðaákvæðið, hættumerkin og yfirlýsingarnar sem peningastefnunefndin á að gefa út, þarf auðvitað að fara varlega, ég er alveg sammála hv. þingmanni í því. Beita þarf því ákvæði af skynsemi. En gallinn við þessa tillögu er sú að það eru engar vísireglur um það, (Forseti hringir.) hvorki í greinargerð með tillögunni né hefur það komið fram í (Forseti hringir.) ræðum þingmanna, við hvaða aðstæður eigi að (Forseti hringir.) gefa út slíkar viðvaranir.