Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að ræða breytingartillögu sem er sennilega ekki sólarhringsgömul og byggir á skýrslu frá Evrópusambandinu sem nefndin fékk í gær til skoðunar. Ég hef lýst henni sem sprengju sem lumað er í tösku ferðalangs og getur sprungið við minnsta hnjask. Ef peningastefnunefnd á að tilkynna opinberlega þegar tilefni er til um alvarleg hættumerki getur hún alveg eins bara sagt: Ég ætla að stúta kerfinu. Gott dæmi um það var það sem gerðist í Bretlandi að morgni 8. október 2008 og sagt er frá á eyjan.is, en þar segir, með leyfi herra forseta:
„Ummæli Alistairs Darlings fjármálaráðherra í útvarpsviðtali í gærmorgun um að Íslendingar ætluðu „þótt ótrúlegt væri, ekki að standa við skuldbindingar sínar“ gagnvart Icesave-innlánsreikningunum, urðu til þess að Bretar drógu innstæður sínar út af Icesave-reikningum Landsbankans í gær en um leið líka út af reikningum Kaupþings Edge, þrátt fyrir að breska ríkið hafi verið í ábyrgðum fyrir þær innstæður.“
Þetta dæmi sýnir einmitt hversu viðkvæmt og stórhættulegt það er að koma með upplýsingar opinberlega um stöðu á fjármálamarkaði. Hún getur valdið tjóni langt út fyrir það sem tilefni er til. Enda segir í tilvísun í þeirri skýrslu, sem mér skilst að meiri hluti nefndarinnar hafi haft á bak við eyrað og þar á meðal hv. þm. Álfheiður Ingadóttir sem er viðstödd umræðuna, að gefa eigi svona yfirlýsingar og varúðarorð „þar sem þeirra er þörf“. Ekki opinberlega, ekki út um allt, ekki um allt kerfið, ekki setja það á netið. Nei, „þar sem þeirra er þörf“, væntanlega í mjög miklum trúnaði.
Ef Seðlabankinn kemst að einhverju á hann eða peningastefnunefndin væntanlega að senda viðvörun í viðskiptaráðuneytið. Viðskiptaráðuneytið á svo að senda viðvörun áfram, það getur sent hana víðar, t.d. á ríkisstjórnina. En Seðlabankinn á ekki að birta það opinberlega því að það er nánast það sama og að segja: Við ætlum að sprengja kerfið. Þetta er stórhættulegt ákvæði, alveg stórhættulegt, eins og ég skil það. Nú getur vel verið að ég skilji þetta allt saman rangt. En ég hef ekki haft mikinn tíma til að hugsa það og ég hef ekki haft tíma til að ræða við nokkurn einasta mann um þetta. Slíkur er hraðinn á þessu eina ákvæði. Það getur vel verið að það sé hárrétt að segja frá því að kerfið sé í miklum vanda og það auglýsi, bingó, þannig að allir geti rifið út innstæðurnar sínar eins og breski ráðherrann gerði.
Ég vara eindregið við þessu og ef það er nokkur einasta leið — nú er ekki mikill tími eftir — að breyta þessu þannig að í staðinn fyrir „opinberlega“, standi „til þeirra sem það varðar“ eða „þar sem þeirra er þörf“. Menn þurfa að hafa lesið þetta en alla vega eins og ég skil enskuna þýðir þetta eitthvað allt annað.
Ég ætla nú ekki að stoppa lengur við þetta atriði enda ætla ég ekki að tefja málið. En ég ætla að geta um það sem gerist þegar frumvarpið verður samþykkt sem gerist vonandi sem fyrst því að ég vil ekki sjá það tefja þjóðina mikið lengur. Þá gerist það að hæstv. forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, mun tilnefna tvo menn, bankastjóra og aðstoðarbankastjóra, bara si svona. Hún tilnefnir þá en þeir þurfa að uppfylla skilyrði um menntun sem er ágætt. Síðan stýrir einn af yfirmönnum bankans mótun á stefnu í peningamálum. Hann á líka að vera þarna inni. Þar stendur „einn af“, en það er ekki einu sinni klárt hver það er. Vonandi er það nokkuð skýrt svo að menn fari ekki að rífast um það innanborðs hver á að vera í þessari nefnd. Svo skipar forsætisráðherra tvo sérfræðinga á sviði efnahags- og peningamála til fimm ára um leið og lögin eru samþykkt. Þarna er komin fimm manna stjórn sem forsætisráðherra Íslands, Jóhanna Sigurðardóttir, skipar, vonandi að teknu tilliti til allra menntunarkrafna og annars slíks.
Þetta er það sem gerist fyrst. Þessi nefnd manna, sem skipuð er af einum manni, forsætisráðherra, fer í viðræður við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og gengur frá málum þar. Talandi um flokksræði og ráðherraræði, herra forseti, þá ættu menn að hafa þetta í huga. Þetta er sem sagt alvald hæstv. forsætisráðherra í einhverjar vikur
Svo á að auglýsa starf bankastjóra og aðstoðarbankastjóra og þar er væntanlega einhver umsóknarfrestur. Hann verður varla skemmri en fjórar vikur. Það þarf að ráða þá og þá fer þetta í gang. Þá verða komnir menn sem þessi sami ráðherra, ef hann er þá enn þá við völd, skipar. Sem sagt: Það er einn ráðherra sem skipar allt saman. Ég ætla að vona að þeim ráðherra farnist vel því að þarna er verið að setja alls konar skilyrði um menntun og menn tala mikið um menntun hérna. En það er eins gott að ráðherrann sé þá vel inni í menntunarmálum þegar hún skipar þessa menn og viti hvað hún er að gera. Þessir menn sitja svo áfram og eru óskeikulir og ósnertanlegir af því að Seðlabankinn er sjálfstæður. Vonandi tekst vel til í þeirri atburðarás allri.
Ég ætla nú ekki að tefja þetta lengur eins og ég sagði. Ég hef mjög margt mikið út á frumvarpið að setja og kannski sérstaklega að það tekur ekki á vandanum sem er náttúrlega peningastefna Seðlabankans sem sett er í 3. gr. Það á ekkert að breyta því. Ég er búinn að gagnrýna það í fjölda ára, sennilega fimm, sex, sjö ár, að hún er röng. Hún hefur búið til jöklabréfavandann o.s.frv. Þessi stefna er röng og það á ekkert að breyta henni. Hún á að halda áfram, enda eru menn ekki að þessu til að laga nokkurn skapaðan hlut. Menn eru að þessu til að losna við fólk.
En það skiptir ekki máli. Mér finnst núna, herra forseti, að við eigum að klára þetta mál sem allra fyrst þannig að við getum farið að snúa okkur að því koma bönkunum í gang. Við getum farið að setja atvinnulífið og fyrirtækin í gang þannig að uppsagnir stöðvist og þjóðin geti farið að sjá einhverja von.
Það hefur ekki gerst annað hér á þinginu undanfarnar vikur en að þetta mál hefur verið rætt aftur og aftur. Það vill svo til að við erum að ræða alls konar ágæt þingmannamál. Það er svo sem fínt og ég hef alltaf lagt áherslu á að menn eigi að gera það.
En það liggja engin frumvörp fyrir frá ríkisstjórninni til bjargar heimilunum. Kannski er það ósanngjarnt að gera ráð fyrir því að menn hafi slík frumvörp tilbúin á þessum stutta tíma. En það er einmitt áhættan sem við tókum með því að skipta um stjórn og með því að fara í kosningar að það bara tefur þjóðina í að laga kerfið. Það tefur það um svona fjóra til sex mánuði. Ég ætla að vona að menn fari að taka sér tak og klára þetta og fara að snúa sér að hlutum sem skipta virkilega máli. En nú koma kosningar og prófkjör og annað slíkt þannig að ég geri ráð fyrir að ekki verði mikil framleiðni á Alþingi.