136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[15:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið. Þetta er hins vegar stórt mál sem vandlega þarf að fara yfir. Eins og við þekkjum hefur aðdragandinn verið nokkuð sérstakur og vinnubrögðin eftir því. Ég hygg, og því hefur ekki verið mótmælt, að þetta sé í fyrsta skipti sem við afgreiðum mál um Seðlabanka Íslands án þess að allir flokkar komi að þeirri vinnu, sú hefur verið reglan fram til þessa. Þannig hefur það verið vegna þess að menn telja mikilvægt að sátt ríki um Seðlabankann, hann er ein af grundvallarstofnunum okkar og mikilvægt að menn vandi vel til verka.

Það kemur spánskt fyrir sjónir að sú ríkisstjórn sem nú er, sem samanstendur af tveimur flokkum, Samfylkingunni og Vinstri grænum, hafði stór orð um það, meðan þeir flokkar voru í stjórnarandstöðu, að mjög mikilvægt væri að viðhafa fagleg og gagnsæ vinnubrögð, og ég held að flestir geti verið sammála um það. Ekki er nokkur leið að halda því fram að það hafi verið gert í þetta skipti og við erum að tala, eins og ég vísaði í áðan, um lög um Seðlabanka Íslands.

Ríkisstjórnarflokkarnir hafa einnig rætt mikið um mikilvægi samráðs, að hafa samvinnu við stjórnarandstöðu, og þau sjónarmið eiga sér hljómgrunn. Það kemur því mjög á óvart að sjá hvernig staðið hefur verið að þessu máli. Ekki er hægt að halda því fram að hlutirnir séu gagnsæir þegar það liggur t.d. ekki fyrir hver samdi frumvarpið. Nú kynni einhver að spyrja: Skiptir það einhverju máli? Ég mundi ætla að það ætti í það minnsta ekki að vera neitt leyndarmál. Auðvitað er það aðalatriðið hvernig textinn lítur út og hvernig lagaumgjörðin um Seðlabankann er en ekki hver skrifar hann. En svo virðist sem einhver brotalöm hafi verið í undirbúningnum þegar menn skoða hvernig viðskiptanefnd hefur tekið á málinu. En eftir því sem ég best veit — og þá leiðréttir mig einhver ef það er rangt — hefur viðskiptanefnd nokkurn veginn skrifað frumvarpið upp á nýtt. Ekki er hægt að halda því fram að vandað hafi verið til verka, ekki er hægt að halda því fram að faglega hafi verið unnið og svo sannarlega er ekki um gagnsæi að ræða.

Það hefur vakið athygli víða í þjóðfélaginu að því var hreinlega hafnað að málið yrði sent til umsagnar Evrópska seðlabankans, það var fellt með atkvæðagreiðslu í viðskiptanefnd og það vekur furðu. Það kemur ekki heldur mjög vel við þá sem um þetta fjalla að sjá á síðustu stundu þessa afdrifaríku breytingartillögu sem hv. þm. Pétur H. Blöndal ræddi hér áðan. Mér fannst hv. þingmaður fara ágætlega yfir þau sjónarmið og þær spurningar sem sú breytingartillaga vekur. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að ég get ekki greint það hér og nú hvort þetta sé hin besta breytingartillaga eða hvort hún sé til mikils skaða. Ég held að við séum sammála um það sem hér erum og höfum hlustað á og fylgst með umræðunum að ekki liggur fyrir vitneskja um það. Menn hafa ekki kallað til aðila til að fjalla um þessa breytingartillögu jafnafdrifarík og hún getur orðið.

Það er líka stóra einstaka málið, og það er athyglisvert, að í frumvarpinu er ekki tekið á aðalatriðinu sem er peningamálastefnan. Eins og hv. þm. Pétur H. Blöndal benti á er það augljóslega stóra brotalömin í því sem snýr að Seðlabankanum og afskaplega mikilvægt fyrir okkur að taka á því.

Nú liggur það fyrir, virðulegur forseti, og ég held að það sé ekkert leyndarmál, að forsætisráðherra og ríkisstjórnin hefur áhuga á að skipta um í brúnni í Seðlabankanum og það getur verið sjónarmið út af fyrir sig. En þá gera menn það bara en setja ekki ný lög í miklum flýti og reyna að keyra þau í gegnum þingið til þess eins. Það verður að segjast eins og er að hin kauðslegu bréfaskipti sem hafa verið frá forsætisráðherra til seðlabankastjóranna og síðan frumvarpið, sem er að verða að lögum, er hvorki rétt né skynsamleg aðferð til að skipta um starfsmenn í opinberri stofnun.

Stærsta einstaka málið, virðulegi forseti, er samt sem áður það að við erum núna nokkrum dögum fyrir kosningar á tímamótum sem eru afskaplega afdrifarík fyrir íslenska þjóð. Við þekkjum það öll og vitum að heimilin í landinu og fyrirtækin í landinu eru í miklum vanda. Ég met það svo að hver einasti þingmaður sem starfar á þinginu hafi mikinn áhuga á því að ganga í það verk að sjá til þess að fyrirtækin geti unnið eins vel og hægt er úr þeirri stöðu sem upp er komin og á sama hátt að heimilin geti séð út úr þeim verkefnum og þeirri stöðu sem þau eru í. Ég leit alltaf svo á að þetta yrðu hin stóru verkefni þessa þings og þetta væri það sem við, hv. þingmenn, mundum taka umræðuna um og nýta orku okkar í. Því miður virðist áherslan vera önnur hjá hæstv. ríkisstjórn og því miður virðist sem svo að eyða eigi þessum dýrmæta tíma, og þeim dýrmætu dögum sem við höfum, í aðra hluti og ég tel að það sé mjög miður.

Ég hef áhyggjur af frumvarpinu sem nú er að verða að lögum. Ég vona að það valdi engum skaða en verði til þess að hjálpa okkur við efnahagsstjórnina. Því miður hafa vinnubrögðin ekki verið eins og við vildum sjá þau. Hv. þm. Höskuldur Þórhallsson fór hér yfir það áðan að það væri ekkert einsdæmi að menn hafi verið að flýta málum í gegnum þingið og ekkert einsdæmi að menn hafi ekki kallað til færustu sérfræðinga og fengið umsagnir hjá þeim aðilum sem þyrftu að veita umsagnir um mál, og það er alveg rétt. Ég tel að það sé eitt af því sem við ættum að læra af þeim mistökum sem við höfum gert og eitt af því sem við ættum að vera sammála um að breyta.

Það veldur því miklum vonbrigðum að hæstv. ríkisstjórn skuli taka ákvörðun um að gera ekkert með það, sérstaklega í ljósi þess að þeir hæstv. ráðherrar sem áður voru þingmenn í stjórnarandstöðu — og ég horfi hér á hæstv. fjármálaráðherra — hafa talað fyrir því, ekki bara klukkutímum eða dögum saman heldur, þegar allt er tekið með, mánuðum og árum saman, að það sé afskaplega mikilvægt að fara faglega í gegnum mál, hafa gagnsæi og hafa samráð. Og af því að ég horfi hér á hæstv. fjármálaráðherra get ég sagt frá því að ég fór að leika mér með leitarvélina á vef þingsins. Ég sló inn nafnið Steingrímur J. Sigfússon og jafnframt orð eins og „gagnsæi“, „fagleg vinnubrögð“, „samráð“ og önnur slík. Virðulegi forseti, það hvarflaði að mér að prenta ræðurnar út en af umhverfisástæðum ákvað ég að gera það ekki, það færi langt upp í skógarkvótann á Norðurlöndunum.

Þið munið kannski eftir því að þegar hæstv. fjármálaráðherra var hér í stjórnarandstöðu voru grænir bunkar á borði hans. Á hverri einustu síðu var talað um mikilvægi þess að vinna faglega, mikilvægi þess að hafa gagnsæi og mikilvægi þess að hafa samráð, sérstaklega þegar um væri að ræða stærri mál. Nú hafði hæstv. ráðherra tækifæri til að koma öllum þeim orðum í verk — og við erum að tala um blaðabunka sem mælist í mikilli þyngd. Því miður féll hæstv. fjármálaráðherra algjörlega á sínu eigin prófi.

Vel má vera að um gott frumvarp sé að ræða, og við skulum vona að svo sé, en það er algjörlega ljóst að við vitum það ekki. Ástæðan fyrir því að við vitum það ekki er sú að ekki var unnið faglega, ekki var unnið eftir þeim formerkjum að hafa gagnsæi í málinu og svo sannarlega er ekki um samvinnu eða samráð að ræða og það er mjög miður. Það eru eftirmæli þessa frumvarps að vinnubrögðin voru með þessum hætti — ég ákvað að fara ekkert út í það að vitna í öll ummæli hæstv. fjármálaráðherra í þessa veru enda tæki það dýrmætan tíma þingsins.

Það er ekki ætlun mín að lengja þessa umræðu. Í mínum huga er málið mjög einfalt. Öll þjóðin bíður eftir því að við sem hér erum göngum frá málum sem koma beint við fjölskyldurnar, sem koma beint við fyrirtækin í landinu. Þó að ég sé hjartanlega ósammála þeim sem eru í hæstv. ríkisstjórn í flestum málum eða mjög mörgum málum í pólitík hélt ég að við værum algjörlega sammála um þetta. Ég hélt að dagarnir fram að þingkosningum færu í það og orka okkar færi í það að vinna í því að bæta hag heimilanna og bæta hag fyrirtækjanna, því að svo sannarlega skiptir hver dagur máli. Við ákváðum að fara í kosningar, það er ákveðið hættuspil. Við höfum séð að sum nágrannalönd okkar hafa farið illa út úr því. Sú ákvörðun var tekin og við förum í kosningar og þess vegna hvílir enn meiri ábyrgð á herðum okkar að nýta þann tíma sem við höfum til að vinna í þeim málum.

Virðulegi forseti. Við vitum að það er ekki áherslan hjá núverandi ríkisstjórn, því miður. Þess í stað erum við að vinna þetta mál — sem allir flokkar voru tilbúnir til að vinna að en ekki var gefinn kostur á — með þeim hætti sem raun ber vitni og síðan bíða önnur mál frá ríkisstjórninni sem tengjast ekki hagsmunum heimilanna og fjölskyldnanna, í það minnsta ekki með beinum hætti og í það minnsta ekki þannig að við séum að taka á þeirri bráðastöðu sem upp er komin og það er afskaplega miður.

Vinnubrögðin eru ekki eins og við viljum sjá þau og svo sannarlega ekki í anda orða forustumanna í ríkisstjórn þegar þeir voru í stjórnarandstöðu. Við sitjum uppi með nýtt breytingarákvæði sem fer væntanlega inn í lögin og er kannski gott dæmi um það hvernig á ekki að vinna hlutina. Það er alveg ljóst að menn hafa ekki vitneskju um það hvað það í raun þýðir og hvaða áhrif það mun hafa, en við skulum vona hið besta.

Virðulegi forseti. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að einbeita sér nú að þeim málum sem snúa að fjölskyldunum og fyrirtækjunum í landinu. Ég lýsi því yfir að við sjálfstæðismenn erum tilbúnir til að koma að þeirri vinnu, hjálpa með þau mál, vinna þau mál eins hratt og mögulegt er. Ég vonast til að við berum gæfu til þess að nota þessa síðustu daga í þá vinnu.