136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[17:41]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Gjaldmiðillinn hrundi, fjármálakerfið hrundi og Seðlabankinn varð tæknilega gjaldþrota. Fjármálaráðuneytið varð í raun skilanefnd hins gamla Seðlabanka með því að yfirtaka ónýtar kröfur bankans sem nema hálfri til einni milljón króna á hvert mannsbarn í landinu. Þetta er í raun og veru nýi Seðlabankinn og það er eðlilegt við slíka atburði að breytingar séu gerðar á yfirstjórn Seðlabankans rétt eins og á yfirstjórn viðskiptabankanna. Það hefur ekkert með persónur að gera, það eru einfaldlega nauðsynlegar kerfisbreytingar sem verða að fylgja algjöru hruni, í Seðlabankanum rétt eins og var um viðskiptabankana og það eru auðvitað fyrst og fremst þeir sem leggjast gegn þeim breytingum sem láta (Forseti hringir.) persónur þvælast fyrir sér í pólitíkinni í dag.