136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[17:43]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Það er ekki til marks um óvönduð vinnubrögð, hvorki hv. viðskiptanefndar né hæstv. forsætisráðherra, að frumvarp það sem við nú afgreiðum hefur tekið nokkrum breytingum í meðförum þingsins. Þvert á móti tel ég að þingið eigi að starfa þannig og það sé leiðin til að ná sem víðtækastri samstöðu og sátt um hlutina að vinna mál eins og við höfum hér gert, þingmenn. Það er miður að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki treysta sér til að stíga skrefið til fulls við þessa lokaafgreiðslu. Ég hef þá trú að samþykkt þessa frumvarps muni auka trúverðugleika efnahagsstefnunnar um leið og lagður er grunnur að því að Seðlabankinn geti notið trúnaðar og trausts innan lands sem utan.