þingrof og kosningar.
Virðulegi forseti. Þegar liggur fyrir ákvörðun um þau áform ríkisstjórnarinnar að boðað verði til kosninga 25. apríl og þingrof, og þar með ákvörðun um kjördag, getur þá fyrst farið fram 12. mars, en þó er hægt að draga það fram til 27. mars. Það er líka hægt að stytta frestina t.d. um viku, sem þá yrði að gera með breytingum á kosningalögum, og þá gæti þingrof verið um mánaðamótin mars/apríl og jafnvel alveg til 4. apríl. Það sem er slæmt við þetta er það að utankjörstaðaatkvæðagreiðsla getur ekki farið fram fyrr en búið er að ákveða þingrof og þar með kjördag. Ákvörðun um utankjörstaðaatkvæðagreiðslu gæti þá fyrst farið fram 12. mars eða síðar þegar þingrof yrði ákveðið. Verið er að skoða hvort hægt er að breyta lögum til að utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fari fram fyrr en sú niðurstaða liggur ekki fyrir. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort farið verður í þingrof og þar með ákvörðun um kjördag, þ.e. 12. mars eða síðar, en vonandi verður það sem allra fyrst.