136. löggjafarþing — 90. fundur,  2. mars 2009.

sala Morgunblaðsins.

[15:15]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Hér verður í fyrsta lagi að hafa í huga að eign fyrri eigenda er skrifuð niður í núll, þeir tapa öllu sínu fé og fyrirtækið er síðan af hálfu bankans sett í söluferli. Málið var í höndum viðkomandi banka þannig að ekki ber að líta svo á að í því felist stefnumótun af hálfu stjórnvalda þegar málin eru unnin með þessum hætti. Hefði fyrirtækið verið komið í hendur einhvers eignaumsýslufélags á vegum ríkisins hefði gegnt öðru máli og þá staðið nær stjórnvöldum að svara fyrir það hvernig úr þessu er unnið. Meðan þetta er gert á þennan hátt fer það sína leið og er metið á viðskiptalegum grundvelli.

Því miður horfast menn í augu við afskriftir og tap víða, það er óumflýjanlegt. Á sama tíma er sú krafa rík og eðlileg að reyna að halda lífvænlegum rekstri gangandi og forðast að fyrirtæki komist í þrot í þeim skilningi að þau verði að segja upp öllum sínum starfsmönnum og starfsemin rofni. Slíkt á þá ekki við (Forseti hringir.) hér, þessi stóri vinnustaður heldur áfram og fyrirtækið í höndum (Forseti hringir.) nýrra eigenda getur haldið áfram rekstri.