136. löggjafarþing — 90. fundur,  2. mars 2009.

skattaívilnanir vegna rannsókna- og þróunarverkefna.

69. mál
[16:36]
Horfa

Flm. (Höskuldur Þórhallsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar á þskj. 69, um skattaívilnanir vegna rannsókna- og þróunarverkefna.

Áður en ég kem að meginefni ræðu minnar vil ég nefna að þessi þingsályktunartillaga er mjög í anda hluta af efnahagstillögum okkar framsóknarmanna sem við kynntum um daginn en þar kemur fram að Framsóknarflokkurinn telur afar mikilvægt að styðja við frumkvöðlastarf og nýsköpun. Í því augnamiði er lagt til að fyrirtæki fái skattafslátt vegna rannsókna- og þróunarstarfs. Fyrirtækjum verði heimilt að draga tvöfaldan kostnað við rannsókna- og þróunarstarf frá skatti. Þetta mun hvetja til rannsókna og þróunar og um um leið miða að fjölgun starfa. Verði sú raunin nemur skattafslátturinn vart hærri upphæð en sparast með lægri greiðslum vegna atvinnuleysis. Þetta á sérstaklega við nú þegar óvenjumikill fjöldi fólks með menntun á sviðum sem tengjast rannsókna- og þróunarstörfum hefur misst vinnu eða er líklegt til þess.

Af því að hæstv. iðnaðarráðherra er nú einn þingmanna staddur í salnum veit ég að hann mun væntanlega vera fús til að styðja þetta góða mál. Samfylkingarmenn hafa í nokkurn tíma verið með svipaðar tillögur en því miður hafa þær reynst orðin tóm og þrátt fyrir að þeir hafi setið núna í tveimur ríkisstjórnum á síðustu tæpum tveimur árum hefur ekkert hreyfst í þessu máli og ég verð að segja eins og er að það eru gríðarleg vonbrigði. Nú er tækifærið til að taka undir efnahagstillögur okkar framsóknarmanna og veita um leið þessari þingsályktunartillögu brautargengi. Hún orðast svo:

„Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að hefja nú þegar undirbúning þess að heimila skattaívilnanir vegna kostnaðar sem fyrirtæki leggja í vegna rannsókna og þróunar. Miðað verði við skilgreind og afmörkuð verkefni og ákveðið hámark sett á endurgreiðslufjárhæð hvers árs.“

Víða í nágrannalöndum okkar fjárfestir hið opinbera í nýsköpun og þróunarverkefnum með góðum árangri og eins og ég kom inn á áðan er kannski aldrei mikilvægara en einmitt núna að við reynum með öllum tiltækum ráðum að styðja þau fyrirtæki sem einmitt eru að leitast við að þróa og skapa ný verkefni fyrir sjálf sig og um leið atvinnu fyrir fjölmarga einstaklinga sem eru atvinnulausir.

Í dag veita 18 af 30 OECD-ríkjum einhvers konar skattaívilnanir vegna rannsókna og þróunar. Fjölmargar úttektir og kannanir sem gerðar hafa verið sýna að verulegur skortur er á stuðningi við fjármögnun nýsköpunar- og þróunarstarfa íslenskra fyrirtækja. Þá sýna tölur frá OECD að bein framlög bandarískra yfirvalda til rannsókna- og þróunarstarfs þarlendra fyrirtækja eru þreföld sem hlutfall af þjóðarframleiðslu samanborið við það sem hér þekkist. Það er einmitt meginmarkmiðið með þessari þingsályktunartillögu að efla nýsköpun sem leitt geti til efnahagslegra framfara og bættrar samkeppnisaðstöðu.

Norðmenn breyttu skattalögum sínum á þann hátt að lögaðilar sem stunda rannsóknir og þróun fengu heimild til frádráttar frá tekjuskattsstofni, allt að 20%, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Í lögunum var lögð áhersla á að þeir sem nytu þessara heimilda stunduðu vel skilgreind og afmörkuð rannsókna- og þróunarverkefni með skýrum markmiðum um árangur.

Norðmenn hafa farið þá leið að fela rannsóknarráði Noregs að meta hvort verkefnin uppfylli skilgreiningu skattyfirvalda og jafnframt að meta hvort framtaldir kostnaðarliðir teljist viðurkenndur rannsókna- og þróunarkostnaður.

Þó að yfirskrift tillögunnar sé Skattaívilnanir er norska kerfið sem hér er lagt til að farið verði eftir í raun endurgreiðslukerfi sem veitir skattskyldum fyrirtækjum rétt til þess að fá endurgreidd 20% kostnaðar vegna rannsókna- og þróunarverkefna að tilteknu þaki. Skattkerfið nýtist í þessu skyni þannig að þau fyrirtæki sem greiða tekjuskatt fá afslátt en þau sem ekki greiða tekjuskatt fá endurgreiðslu. Kerfið er þannig óháð skattprósentu og þeim skatti sem fyrirtækin greiða. Þetta gerir kerfið sérstaklega áhugavert fyrir lítil og vaxandi fyrirtæki sem enn bera það mikinn þróunarkostnað að þau eru ekki enn farin að greiða beina tekjuskatta af rekstrarhagnaði.

Þingsályktunartillaga þessi er sérstaklega miðuð að því að bæta hag sprotafyrirtækja eða fyrirtækja með færri en 10 starfsmenn. Reynslan af kerfinu er sérstaklega góð í Noregi eins og ég kom hér áður að. Kerfið hefur komið mikilli hreyfingu á nýsköpunarstarf norskra fyrirtækja og verkefni þeirra hefðu ekki komist á legg án þessa stuðnings. Verðmæti fyrirtækjanna hefur aukist sem og samstarf við önnur fyrirtæki og stofnanir. Sérstaklega vil ég benda á það að 25% norskra útrásarfyrirtækja hafa nýtt sér kerfið.

Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er undirstaða hagvaxtar á Íslandi. Án nýsköpunar- og þróunarverkefna er hætt við að atvinnulífið verði einsleitara, samfélagið staðnaðra og viðkvæmara fyrir sveiflum. Á tímum mikilla sveiflna á gengi krónunnar og miklum mun á hagvaxtarstigi á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni og í raun í kjölfar þess efnahagshruns sem orðið hefur hjá íslensku þjóðinni hefur aldrei verið mikilvægara að efla rannsókna- og þróunarþátt fyrirtækja. Með þessu er hægt að skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið og ég er viss um það að þetta mun gagnast nýsköpunarfyrirtækjum úti á landi og sérstaklega, af því að við ræddum um stöðu landbúnaðarins áðan og þáttar hans í að skapa ný störf og stuðla að nýsköpun, gæti þetta verkefni reynst þeim fyrirtækjum sem þar starfa einstaklega vel.

Það er ljóst að búa þarf atvinnulífinu hagstæð starfsskilyrði, sérstaklega fyrstu starfsárin. Sá stuðningur þarf að vera sambærilegur við þann sem veittur er fyrirtækjum í samkeppnislöndunum. Ég tel því afar mikilvægt að þetta mál fái framgang á Alþingi og mælist til að tillögunni verði vísað til efnahags- og skattanefndar. Ég tel viðeigandi að sú nefnd fjalli um málið en vil þó einnig benda á að þar sem efnisþáttur þingsályktunartillögunnar skarast við aðrar nefndir og gæti þess vegna átt heima undir viðskiptanefnd eða menntamálanefnd þá verði hún einnig tekin til skoðunar í þeim nefndum. Ég vonast einnig til að tillögunni verði vísað til síðari umræðu.