Hólaskóli – Háskólinn á Hólum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Magnúsi Stefánssyni þessa fyrirspurn. Það er ljóst að starfsumhverfi landbúnaðarskólanna á Hólum og Hvanneyri breyttist mjög þegar þeir voru færðir frá landbúnaðarráðuneytinu yfir til menntamálaráðuneytis á sínum tíma. Áður höfðu skólarnir gengið í gegnum miklar breytingar í sínu starfi. Þeir voru færðir upp á háskólastig og þar hefur verið mikil uppbygging á báðum stöðum, mikil fjölbreytni í námsframboði, eins og hv. þingmaður benti réttilega á, og mikið líf í starfseminni.
Hins vegar er rétt að Hólaskóli hefur átt við rekstrarvanda að stríða og sama má segja um Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Það liggur líka fyrir að ýmsar hugmyndir sem tengjast framtíð beggja skólanna hafa verið unnar í menntamálaráðuneytinu og viðræður hafa verið á ýmsum stöðum. Varðandi framtíðarsýn Hólaskóla þá eru Hólar sérstakur staður því að þetta er ekki aðeins skóli, þetta er sveitasetur, byggðarkjarni, kirkjustaður og menningarsetur. Hólar eru í raun einstakur staður sem þarf að hugsa í þeirri heild sem hann er.
Fyrir lágu hugmyndir um að breyta skólanum í sjálfseignarstofnun en það verður ekki gert nema með lagabreytingu. Liggur fyrir að sú ríkisstjórn sem nú situr fer ekki í lagabreytingar af því tagi, enda einbeita menn sér að þeim málum sem tengjast sérstaklega verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar.
Sú sem hér stendur hefur ekki endanlega tekið afstöðu til þessa rekstrarforms, hvernig það hentar, en hins vegar er algjörlega ljóst að taka þarf á rekstrarvandanum og það er brýnt. Í því skyni hef ég skipað samstarfshóp þriggja ráðuneyta, landbúnaðarráðuneytis, menntamálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis, sem mun fara yfir rekstrarstöðuna, bæði hjá Hólaskóla og Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Honum er ætlað að skila tillögum um úrbætur til menntamálaráðherra eigi síðar en 20. mars nk. enda tel ég að það sé í raun lykilverkefni hvernig ná megi jafnvægi í rekstri skólanna. Út frá því getum við velt fyrir okkur hugmyndum um framtíðarsýn og hvert þróa eigi skólana. Þetta er mál sem brennur á starfsfólki skólanna og á starfi þeirra þannig að þessum hóp er ætlað að vinna hratt.
Frá áramótum hefur verið unnið af krafti að því að fara yfir bókhald Hólaskóla og ná utan um reksturinn, ná samningum við kröfuhafa og gera raunhæfa rekstraráætlun. Rekstraráætlun fyrir yfirstandandi fjárlagaár hefur verið samþykkt og hún gerir ráð fyrir því að rekstur verði innan fjárheimilda ársins en enn þá liggur fyrir einhver hali. Samkvæmt upplýsingum frá tilsjónarmanni skólans er miðað við að skuldauppgjör liggi endanlega fyrir þann 15. mars nk. þannig að unnið er að þessum málum.
Ég ítreka það sem ég hef þegar sagt, að við tilfærsluna frá landbúnaðarráðuneyti yfir til menntamálaráðuneytis breyttist margt í starfi skólanna. Það hefur mjög margt breyst og mikil uppbygging hefur verið sem er hluti af þeirri bágu rekstrarstöðu sem þeir eiga báðir við að stríða. Ég tel mjög mikilvægt að við vinnum að því að ná þar jafnvægi áður en frekari ákvarðanir verða teknar, það er númer eitt. Hugmyndir um breytt rekstrarform hafa ekki verið slegnar út af borðinu. Þær bíða betri skoðunar og það bíður næstu ríkisstjórnar að taka ákvarðanir um þau málefni.