136. löggjafarþing — 93. fundur,  4. mars 2009.

Hólaskóli – Háskólinn á Hólum.

347. mál
[15:52]
Horfa

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Magnúsi Stefánssyni fyrir að koma með þessa fyrirspurn. Ég heyri á máli hæstv. menntamálaráðherra að verið er að vinna í málunum sem er afar nauðsynlegt því að vandi þessara skóla á undanförnum árum hefur iðulega birst okkur þannig í fjárlaganefndinni að þar hafi safnast upp skuldir og rekstur verið erfiður. Það er ekki viðunandi til framtíðar að þannig verði málum háttað og þess vegna fagna ég því sérstaklega sem ráðherra upplýsir hér að verið sé að skoða báða skólana, ekki bara Hólaskóla heldur einnig Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Ég vænti þess að út úr þeirri skoðun komi tillögur sem byggja megi á, að þessir skólar geti rekið sig í framtíðinni með þeim glæsibrag sem þeir vissulega eiga rétt á að gera og haldi þar uppi eðlilegri kennslu og þjónustu. (Forseti hringir.) Umsóknir í skólana hafa verið nægar og við þurfum að gæta sérstaklega að því að þessi menntun verði áfram í boði og dragist ekki saman.