136. löggjafarþing — 95. fundur,  5. mars 2009.

sameining bráðamóttöku í Fossvogi og við Hringbraut.

[10:34]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F):

Herra forseti. Á erfiðum tímum er mikilvægt að við stöndum vörð um velferðarþjónustuna og ekki síst heilbrigðisþjónustuna. Núverandi hæstv. heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, hefur úr ræðustóli Alþingis talað mikið um að við höldum úti einu besta heilbrigðiskerfi í heimi og ég vil trúa því að hæstv. ráðherra stefni að því að svo verði áfram.

Fyrir dyrum stendur sameining bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut og slysadeildarinnar í Fossvogi. Starfsmenn á Landspítala hafa lýst yfir miklum áhyggjum vegna þessara fyrirætlana og fram hefur komið í máli lækna á spítalanum að þeir hafi þungar áhyggjur af að sameining bráðamóttakanna spilli góðum árangri og geti jafnvel ógnað öryggi sjúklinga. Við það verður ekki búið, hæstv. forseti.

Bent er á að læknar hafi sérstaklega áhyggjur af fólki sem er með kransæðasjúkdóma og segja að hvergi þekkist að bráðamóttaka sem tekur á móti hjartasjúklingum í borg á stærð við höfuðborgarsvæðið sé án þess að hafa hjartadeild og hjartarannsóknarstofu o.fl. Benda má á að þegar hjartasjúklingar lenda í hjartastoppi eða kransæðastíflu skiptir hver mínúta miklu máli og það er mikilvægt að fara vel með þann tíma sem þar um ræðir.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Stendur til að endurskoða þessa ákvörðun um sameiningu? Hvað telur ráðherrann að sparist miklir fjármunir við þetta og er hæstv. ráðherra sammála heilbrigðisstarfsfólki á Landspítalanum að slík sameining geti í einhverjum tilvikum ógnað öryggi sjúklinga og þá kannski ekki síst hjartasjúklinga?