uppsagnir þyrluflugmanna Landhelgisgæslunnar.
Herra forseti. Mig langaði aðeins til að fjalla um það sem ég tel vera eitt af meginhlutverkum hins opinbera, þ.e. að gæta öryggi borgaranna og löggæslu. Í síðustu viku bárust fréttir af því að segja ætti upp þyrluflugmönnum hjá Landhelgisgæslunni. Sú staðreynd leiðir til þess að björgunargeta Landhelgisgæslunnar skerðist verulega og þýðir að ekki verður hægt að halda úti tvöfaldri vakt þyrlu og áhafna. Það leiðir síðan til þess að þyrluflugmenn í útkalli kunna að hugsa sig tvisvar um áður en lagt er í leiðangur af ótta við eigið öryggi og eigin áhafnar.
Það er að mínu mati algerlega óásættanlegt að öryggi sjómanna sé teflt í hættu með þessu móti en það verður líka að hafa það í huga að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnir einnig öðrum bráðnauðsynlegum verkefnum, til að mynda löggæslu og eftirliti á hafi úti og sjúkraflutningum á landi, svo dæmi séu tekin. Þessar uppsagnir leiða af fjárskorti sem Landhelgisgæslan á við að etja sem leiðir af gengisbreytingum sem orðið hafa.
Herra forseti. Ég hef ekki legið á þeirri skoðun minni að hið opinbera þarf að taka til í rekstri sínum og spara en þegar um öryggismál er að ræða er auðvelt að forgangsraða í þágu þeirra sem Landhelgisgæslan sinnir með því að fela henni þau verkefni sem Varnarmálastofnun sinnir og kosta hátt í annan milljarð kr. á þeirri stofnun. Ég er sannfærður um að unnt er að nýta þessa miklu fjármuni betur og þar með til að styrkja innviði Landhelgisgæslunnar. Mig langar til að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort hún hyggist grípa til einhverra aðgerða til að koma í veg fyrir uppsagnir þessara þyrluflugmanna, (Forseti hringir.) hvort það komi til greina að færa þá fjármuni sem ætlaðir eru Varnarmálastofnun til að styrkja innviði Landhelgisgæslu.