virðisaukaskattur.
Virðulegi forseti. Það mál sem nú er til umræðu er eitt af betri málum sem hafa komið á síðustu vikum og mánuðum inn á Alþingi að mínu mati. Ekki þó þannig að ég sé talsmaður þess að heppilegt sé að krukka mikið í virðisaukakerfið því það kerfi er þannig að það á ekki að vera að fleyta því til og frá, en þó — hér er það gert með ákveðnu inngripi og það verður að segjast eins og er að það er gott til þess að vita að það var samhljómur í efnahags- og skattanefndinni gagnvart þessu máli.
Ég verð að segja það fyrir mitt leyti, virðulegi forseti, að ég er nokkuð stoltur af því hvað málið fékk víðtæka umræðu og fyrir hversu vinsælt, ef svo má segja, það varð fyrir utan þingið. Hugsanlega út af því að það fjallar um að endurgreiða skatta líkt og það frumvarp sem við fjölluðum um í desember, svokallað bílafrumvarp sem laut að því að endurgreiða vörugjöld og virðisauka af ökutækjum sem voru flutt úr landi. Það fékk nokkuð almenna umræðu.
Líkt og framsögumaður, hv. þm. Árni Þór Sigurðsson, kom að komu fjölmargir að málinu með umsagnir sem voru allar á einn veg, þ.e. að reyna að styrkja frumvarpið enn frekar og láta það verða víðtækara. Allt frá því að frumvarpið kom fram lýsti ég því yfir í þingflokki Samfylkingarinnar að ég mundi reyna að stuðla að því að þetta frumvarp mundi einnig ná þeim hljómgrunni í efnahags- og skattanefndinni, sem ég sit í, að það væri hægt að ná samstöðu um það einmitt eins og nú hefur orðið.
Ástæðan er einfaldlega sú að þetta frumvarp og sú breyting sem verður á lögunum verður fyrst og fremst til þess að örva atvinnulífið svo fremi sem fjármagn er til staðar. Það er kannski vandinn að við endurgreiðum engan virðisaukaskatt af fjármagni sem ekki kemur inn. Nú um stundir er það vissulega svo að bæði eigendur íbúðarhúsa eða frístundahúsa og/eða sveitarfélög, opinber félög í eigu sveitarfélaga hafa lítið fjármagn til umráða og þar af leiðandi eru allir mjög varfærnir gagnvart því að fara í fjárfestingar eins og þessar hvort sem um er að ræða viðhaldsframkvæmdir eða nýbyggingar.
Sú umræða sem mun fara fram í dag snýr fyrst og fremst að atvinnulífinu og það verður eftir því tekið hverjir taka þátt í henni og því hvet ég hv. þingmenn til þess að gera það. Þetta er eitt af þeim málum sem snúa beint að atvinnulífinu. Ég hef tekið eftir því í umræðu um málið fyrir utan þingið, í fjölmiðlum, tala hv. þingmenn jafnan til atvinnulífsins sama í hvaða flokki þeir eru og því tel ég mjög mikilvægt að hv. þingmenn taki þátt í umræðunni í dag. Ég tel einsýnt að málið fari aftur til umfjöllunar í efnahags- og skattanefnd milli 2. og 3. umr. og að með hliðsjón af þeirri umræðu sem mun fara fram í dag muni hugsanlega verða skoðaðir fletir á því að styrkja frumvarpið enn frekar.
Ég legg það ekki í vana minn, virðulegi forseti, að særa hv. þingmenn til umræðu en ég vil samt gera það núna í ljósi góðrar ræðu framsögumanns, hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar, þar sem hann tekur upp þann vinkil sem er á þessu máli, þ.e. að málið snýst fyrst og fremst um að örva atvinnulífið. Ég hef síðan sagt að fyrirvarinn í málinu sé fjármagnið. Í upphafi ræðu minnar vék að því að ég væri kannski ekki talsmaður þess að vera að krukka mikið í virðisaukaskattskerfinu. Ég veit hins vegar að þetta gæti orðið til þess að sá virðisauki sem kemur til baka fari aftur út í veltuna og síðan eru afleiddir skattar en um þetta segir í nefndarálitinu, með leyfi forseta:
„Telur nefndin að sú leið sem frumvarpið gerir ráð fyrir sé vel til þess fallin að auka atvinnu og draga úr svartri atvinnustarfsemi.“
Þar sem fulltrúar allra flokka koma að þessu máli er augljóst að það er ríkur hugur til þess að menn vilji fara fram með málið eins og hér er gert, þ.e. að þetta verði til þess að örva atvinnustarfsemi og draga úr svartri atvinnustarfsemi og um leið verði þetta til þess að skapa meiri veltu á markaði.
Ég álít að hinar óbeinu tekjur sem verða af þessu verði það miklar að það álit sem nefndin fékk frá Seðlabankanum um að ríkið þurfi að mæta umræddu tekjutapi verði hins vegar til þess að aukning verði á tekjum með fyrirvara eins og ég hef sagt áður um það að fjármagn sé til staðar til að veita inn í kerfið. Þar af leiðandi muni kerfisjöfnunin leiða til þess að skattar verði meiri en ella. Tímabundið ástand á þessum markaði er það slæmt að hér þarf að hugsa óhefðbundið og ég er stoltur af því að hv. þingmenn hugsi óhefðbundið í umræðu um þetta mál. Ég veit að talsmenn atvinnulífsins hér á þingi, eins og flestir ef ekki allir þingmenn eru, taka þessu frumvarpi fagnandi.
Ég vil ítreka það sem flutningsmaður þessa nefndarálits frá efnahags- og skattanefnd, hv. þm. Árni Þór Sigurðsson, sagði að það voru fjölmargir sem veittu nefndinni umsögn og fyrir það ber að þakka en umsagnirnar voru nær allar á einn veg.
Ég er sérstaklega ánægður með að nefndin hafi náð inn því ákvæði sem lýtur að starfsemi arkitekta, tæknifræðinga og kollega minna, verkfræðinganna, og ég tel að það þurfi að huga að byggingarfræðingunum líka. En það verður væntanlega túlkað í umræddri reglugerð um framkvæmd þessarar endurgreiðslu því byggingarfræðingarnir eru vissulega stór hluti þeirra sem hanna og eru í verkeftirliti.
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þátt sveitarfélaganna en sveitarfélögin munu fá hér ákveðinn stuðning varðandi framkvæmdir sínar hvort sem er í veitum og/eða í öðrum framkvæmdum, því veituframkvæmdir tengjast húsbyggingum að hluta. Sveitarfélögin munu væntanlega við endurskoðun fjárhagsáætlana sinna nú í ár og líka með það í huga að allt árið 2010 er undir, horfa til þess að notfæra sér þetta endurgreiðsluskjól, ef svo má segja, sem umrædd lög taka mið af. Með þessu verður hægt að fá 20% til baka af þeim kostnaði sem til fellur. Þetta er mjög mikið og það er meira en að segja það fyrir sveitarfélög að horfa til þess að ríkið ætli að koma inn með 20% til baka í viðkomandi framkvæmdir.
Sveitarfélög hafa fjölmargar fasteignir undir, bæði skólahúsnæði, grunn- og leikskólahúsnæði, íþróttamannvirki, sundlaugar en ekki síður félagslegt íbúðarhúsnæði. Ég þekki til í Hafnarfirði og þar erum við með á þriðja hundrað íbúðir undir. Í Reykjavík eru hundruð íbúða undir vegna þessa. Allt þetta mun stuðla að því að þær atvinnugreinar sem tengjast byggingariðnaði, viðhaldsmarkaði og nýframkvæmdum munu koma að þessum málum.
Vandamálin og fyrirvarinn sem ég set er auðvitað fjármagnið, því fjármagnið þarf að vera til staðar til að menn geti staðið undir 80% þó að menn fái 20% inn. Ég er þess fullviss að þau 20% sem sveitarfélögin fá inn munu fara aftur út. Það hefur verið reynslan við þau verkefni sem við þekkjum varðandi fráveituframkvæmdir sveitarfélaga. En eins og hv. þingmenn og virðulegur forseti þekkja þá eru í tengslum við lög um fráveitur, endurgreiðslu á fráveituverkefnum, um 20% sem koma til baka í formi styrkja til sveitarfélaganna.
Virðulegi forseti. Ég var með ákveðinn fyrirvara þó að hann hafi ekki verið tilgreindur í nefndarálitinu en ég vildi stíga skrefið mun lengra en hér er gert og get sagt frá því nú. Ég vildi skoða þann hlut að endurgreiða virðisauka af manntímum inni á verkstæðum, til að mynda glugga- og hurðaverksmiðjum, inn á glerverksmiðjum, sama hvort það er í Rangárvallasýslu eða í Hafnarfirði, og inn á vélaverkstæðum og vélsmiðjum varðandi þessi mál. Það er verið að endurgreiða virðisaukaskatt af manntímum á byggingarstað en við verðum að horfa til þess að mjög mikið af þeim verkefnum sem er verið að vinna varðandi viðhald og/eða nýbyggingaverk eru manntímar sem eru unnir á ýmsum verkstæðum, t.d. glugga- og hurðasmiðjum, járnsmiðjum, vélaverkstæðum, glerverksmiðjum og svo koll af kolli.
Ég veit að þetta getur verið spurning um samkeppnissjónarmið því þarna er líka verið að flytja inn vörur, t.d. glugga eða hurðir. Við getum líka tekið sem dæmi forsteyptar einingar, uppsetta járnstiga eða timburstiga. Þarna skapast ákveðin samkeppnissjónarmið á móti því að innflutningurinn er þannig að endurgreiðslan á þeim manntíma sem er unninn erlendis varðandi slíkar einingar fæst ekki.
En á sama hátt, ef við víkjum því til hliðar og ef samkeppnislöggjöfin næði ekki yfir þetta, sem ég vil draga í efa því um er að ræða sérlög um endurgreiðslu, þá álít ég að hinir sömu aðilar, án þess að nefna þá á nafn, innflytjendur á efnisvöru muni njóta góðs af því að framleiðslan færi af stað innan lands. Þeir mundu njóta góðs af því að geta selt festingar, þéttiefni og ýmislegt annað sem þarf til þess að ganga frá gluggum og hurðum, gleri og slíku. Það mundi hafa þær afleiðingar að salan hjá umræddum innflytjendum, sem eru nokkuð stórir á markaðnum hér og eru með smásölu líka, mundi örvast en hún er nú í lágmarki. Þá kæmi virðisauki inn á móti til ríkisins vegna þess að þar væri verið að selja festingaefni og þéttingar og ýmislegt annað. Það má því vel vera í þessu sambandi vegna þess að þetta er ákveðið hvataverkefni að um yrði að ræða kaup kaups og menn vildu vilja víkja sér undan þeirri umræðu sem tengist samkeppnislöggjöfinni.
Virðulegi forseti. Ég ætla að ljúka ræðu minni varðandi þetta mál. Eins og ég sagði í upphafi álít ég að hér sé um að ræða eitt af mjög góðum málum sem fara í gegnum þingið á þessum tíma, þ.e. á þeim tíma sem við þurfum að hugsa svolítið óhefðbundið. Þetta er vissulega verkefni sem tengist atvinnulífinu að mestu en um leið þeim sem standa í viðhaldi húsnæðis eða í nýframkvæmdum. Þeir geta fengið virðisaukann til baka og nýtt hann á annan hátt þannig að við fáum hreyfingu á fjármagn og það er vissulega það sem við þurfum á að halda núna, við þurfum að fá hreyfingu á fjármagnið. Fjármagnið verður þó að vera til staðar því sá sem hefur ekki 80% af fjármagninu hvort sem er í lánsfé eða í eigin fé til þess að fara í viðkomandi framkvæmdir mun auðvitað ekki geta nýtt sér 20% bakfærslu á 24,5% virðisaukanum. Það liggur alveg ljóst fyrir. Hér þarf því grunnfjármagnið að vera til staðar til að þetta nýtist.
Ég sagði í byrjun að ég mundi fylgjast með því í dag hverjir tækju þátt í þessari umræðu um atvinnulíf á Íslandi. Og án þess að ég sé að særa þingmenn fram í umræðu sem þessari þá vil ég hvetja alla hv. þingmenn til þess að stíga inn í þetta mál. Atvinnulífið þarf svo virkilega á því að halda að það sé talað á jákvæðan hátt líkt og framsögumaður gerði, hv. þm. Árni Þór Sigurðsson, og ég tel mig hafa gert, til þess að fylgja máli eins og þessu eftir.