136. löggjafarþing — 95. fundur,  5. mars 2009.

virðisaukaskattur.

289. mál
[12:21]
Horfa

Gunnar Svavarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þennan hljómgrunn hjá hv. þm. Ólöfu Nordal.

Nú er það svo að hv. þingmenn sem sitja í efnahags- og skattanefnd með mér eru kannski ekki meiri snillingar en eru yfirleitt í öðrum nefndum og þess vegna er stundum svo að við höfum ekki svör við öllu á reiðum höndum. Ég verð þó að segja að í þessum efnum höfum við kallað eftir þessum upplýsingum, líkt og hv. framsögumaður Árni Þór Sigurðsson kom að varðandi kostnaðinn. Erfitt er að meta kostnaðinn, annars vegar er sá kostnaður sem er endurgreiddur en gæti hugsanlega orðið að tekjum á öðrum stöðum þannig að fjármagn fengist inn í hringrásina sem margfaldar sig. Vandamálið er, eins og spurt var um, hvort þetta 80% fjármagn, sem þarf til að ýta þessu inn í kerfið og fá síðan aftur inn í bakflæðið, og viðbrögðin verði til staðar. Mér finnst það vera aðalhindrunin.

Ég hef rætt þetta við fjölmarga, bæði í iðnaðarnefnd og síðan verktaka og ýmsa aðra, húsasmiði og hönnuði sem segja hindrunina verða þá hvort fjármagnið verði til staðar.

Síðan er það umræðan um samkeppnissjónarmiðin og út af því að hér eru nefndar gluggaverksmiðjur vil ég nefna að á Suðurnesjum var stór gluggaverksmiðja, sem var flutt til Litháens eða Lettlands þegar þenslan var mikil og þar var unnið en vörurnar voru fluttar heim og seldar. Ég vil hins vegar meina að nú sé mjög lítið að gera í þeirri gluggaverksmiðju og þeir aðilar sem eiga hana eiga kannski að horfa til þess að geta selt þéttingarefni og festingar í þá glugga sem eru framleiddir hér innan lands, því að hvatinn kæmi þá á manntímana sem eru inni í gluggaverksmiðjunni. (Forseti hringir.) Samkeppnislöggjöfina þarf að skoða og ég vona (Forseti hringir.) að við gerum það á milli 2. og 3. umr.