136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

tilhögun þingfundar.

[15:29]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag, þ.e. þar til umræðu um dagskrármálin er lokið. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Hversu lengi hyggst forseti halda áfram?) Tímamörk að kvöldi hafa ekki verið ákveðin. (Gripið fram í: Inn í nóttina?) Inn í nóttina. (Gripið fram í.) Það er enginn sem óskar eftir atkvæðagreiðslu svo tillagan skoðast þá samþykkt.