136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

atvinnumál.

[15:36]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Herra forseti. Það er rétt sem kom fram í máli hæstv. iðnaðarráðherra, við vorum oftar en ekki samherjar þegar kom að tillögum varðandi rannsóknir og þróun. Ég fagna líka sérstaklega endurgreiðsluhlutfallinu varðandi kvikmyndagerðina, ég held að það skipti miklu máli að laða að fólk til þess að taka upp myndir hér á landi.

Engu að síður er ég nokkuð undrandi varðandi störf tengd rannsóknum og þróun, miðað við hvernig málið var lagt upp í síðustu ríkisstjórn, ég hélt að málið væri komið lengra. Ég er að tala um þúsund störf. Það er 1/4 af þeim tillögum sem ríkisstjórnin setur fram, hún segir: Þúsund störf í nýsköpun. Þá er grátlegt að málið skuli ekki vera komið lengra en að setja eigi málið í nefnd og í hendur sérfræðinga til þess að breyta skattumhverfinu.

Ég mun að sjálfsögðu styðja það en mér finnst vont að frétta að við sjáum ekki fram á fjölgun upp á þúsund störf í nýsköpunargeiranum af því að það á eftir að setja málið í nefnd. Ég hefði kosið að sjá frumvarp (Forseti hringir.) um eflingu rannsókna og þróunar hjá fyrirtækjum, hjá (Forseti hringir.) sprotafyrirtækjum, það hefði raunverulega þýtt þúsund störf.