136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

skerðing bóta almannatrygginga vegna lífeyrisgreiðslna.

[15:42]
Horfa

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra vel fyrir góð og skýr svör og fagna því að hún tekur undir það sem ég spurði um að því er varðar þessa stefnumótun og vænti þess að það gangi fram fyrr en seinna. Það er ekki langur starfstími eftir hjá þessari ríkisstjórn en vonandi næst stefnumótun í þessa veru fram sem lýtur að því að við tökum upp einhvers konar jafnræðisreglu að því er varðar tekjur úr lífeyrissjóðum miðað við aðrar tekjur og skerðingarreglur hjá Tryggingastofnun.

Ég vil minna á það í lokin, um leið og ég endurtek þakkir mínar fyrir svarið, að við höfum lagt fram þingmál í Frjálslynda flokknum um þetta atriði og útfærslu og bendi ráðherranum á það. Ég treysti því að mál sem mælt hefur verið fyrir í þinginu séu einnig til skoðunar í viðkomandi nefnd.