136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

endurreisn efnahagslífsins.

[16:38]
Horfa

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Það sem skiptir okkur öllu máli nú við þær aðstæður sem eru í þjóðfélaginu er að reyna að halda uppi atvinnunni, auka atvinnustigið en missa það ekki niður. Það skiptir öllu máli að reyna að auka tekjur þjóðfélagsins. Það er einfaldlega þannig að við þurfum að gera ráðstafanir strax.

Það sem við þurfum að gera er að keyra niður stýrivexti eins fljótt og mögulegt er. Ég held að við ættum að setja stefnuna á það að taka ákvörðun um að reyna að lækka stýrivextina í einu stökki niður í 8%, lækka þá um 10% og gefa þannig jákvæð merki um það sem má verða til þess að auka hér afkomu atvinnulífsins og tryggja atvinnu fólksins. Við eigum mjög mikið undir því að okkur takist að snúa þróuninni við, styrkja atvinnulífið og efla atvinnustarfsemi.

Við eigum líka mjög mikið undir því, hæstv. forseti, að koma í veg fyrir að fólk missi eignir sínar. Þar þarf að koma með tillögur. Ég sé ekki annað, hæstv. forseti, en að staðan sé víðast sú að við munum þurfa að fara í að skera niður skuldir fólks varðandi húsnæði. Eignabruni á sér stað í þjóðfélaginu. Eignir fólks lækka í verði á sama tíma og skuldirnar keyrast upp með vaxtaokri og verðtryggingu. Á þessu verður að taka, hæstv. forseti.

Á þessi atriði þurfum við sérstaklega að horfa, að vinna gegn atvinnuleysinu og þess vegna að afskrifa eitthvað af skuldum heimilanna. Við stöndum frammi fyrir því, hvernig svo sem menn horfa á málin, að skuldir fólks vegna húsnæðis muni afskrifast. Ef það verður ekki gert með aðgerðum ríkisvaldsins og Alþingis mun það enda með því að Íbúðalánasjóður, lífeyrissjóðir og bankar munu eignast mikið af húsnæðinu í landinu. Og hverju standa menn þá frammi fyrir? Lækkandi eignaverði. Og halda menn að þeir selji eignirnar sem þeir eru búnir að taka af fólkinu á því verði sem þeir taka þær inn? Nei, það gerist ekki eins og þróunin er.

Þess vegna held ég að menn komist ekki hjá því að horfa á þetta bara ískalt eins og það liggur fyrir og það þýðir að það þarf að horfa til þess að skera niður ákveðnar skuldir fólks. Það er einnig sú staða sem við stöndum virkilega frammi fyrir varðandi sum fyrirtækin í landinu.

Við eigum auðvitað sérstaklega að horfa til þess hvar við getum aukið útflutningstekjurnar. Við höfum bent á það í Frjálslynda flokknum að það er hægt. Það getur vel verið að sumir kalli það að taka einhverja áhættu á lífríki sjávar að nýta þar meira auðlindirnar en gert hefur verið en það er hægt og ég minni á það, hæstv. forseti, að við gerðum það 1968–1970 þegar síldin hvarf. Þá opnuðum við hólf allt í kringum landið og settum allan flotann í verkefni þótt það væru ekki síldarverkefni. Menn brugðust við með því að reyna að halda uppi atvinnunni. Það er það sem við verðum að gera eins og nú horfir.

Það er auðvitað hörmulegt að einn bankinn enn skyldi hafa farið á höfuðið. Hins vegar er þar ekki um beinan viðskiptabanka að ræða þótt hann hafi vissulega starfað í viðskiptalífinu og skipti verulega miklu máli.

Ég vænti þess, hæstv. forseti, að okkur takist að halda sparisjóðakerfinu. Okkur hefur tekist það hingað til og ég treysti því að ríkisstjórnin rói að því öllum árum að koma í veg fyrir að sparisjóðirnir falli, verði gjaldþrota.

Ég er hins vegar viss um að við þurfum að semja við marga okkar erlendu lánardrottna. Ég held að ekki verði undan því vikist að semja við einhverja lánardrottna og að þeir eignist m.a. hlut í nýju bönkunum. Ég held að við eigum ekki aðra leið í mörgum tilfellum. Það er ekki þar með sagt að það sé neitt slæmt að fá erlent fjármagn inn í íslenskt bankakerfi. Ég er ekki á því að það þurfi að vera slæmt ef það er gert með réttum hætti og að þeir sem hafa verið lánveitendur okkar á undanförnum árum eigi sameiginlega hagsmuni í því með okkur Íslendingum að hér gangi hlutirnir betur en þeir hafa gert undanfarna mánuði, að okkur takist að rétta okkur af. Það væri æskilegt að þeir sem hafa verið lánveitendur okkar sæju í því hag að standa með okkur í þrengingum okkar.

Ég vara hins vegar við því, hæstv. forseti, að ganga til þeirra samninga sem menn eru að tala um varðandi Icesave-reikningana. Þar horfum við á miklar skuldir og ef við eigum að taka þær á þeim viðskiptakjörum sem maður hefur heyrt að væru í boði erum við að tala um tugi milljarða króna í nýjar vaxtaálögur á ríkissjóð. Við megum ekki gleyma því að tekjur ríkissjóðs drógust saman á síðasta ári og það stefnir í að þær dragist saman á þessu ári. (Forseti hringir.)

Það er nóg af varúðarmerkjum, það þarf að sigla þessa leið og hún er skerjaleið, hæstv. forseti.