endurreisn efnahagslífsins.
Herra forseti. Það er alveg makalaust að heyra hv. þm. Einar Kristin Guðfinnsson tala hér eins og fortíðin sé ekki til. Ég hefði gjarnan viljað heyra hv. þingmann biðjast afsökunar sem fyrst á efnahagshruninu sem Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á í 18 ár. (Gripið fram í: Það verður framtíðin …)
Staðan er svo sannarlega erfið en við eigum líka mikla möguleika. Ég tel að nú þurfum við að standa vörð um atvinnuna, við þurfum að efla útflutningsgreinarnar, við þurfum líka að efla framleiðslugreinarnar sem spara okkur gjaldeyri. Við höfum mikla möguleika í landbúnaði og matvælavinnslu, við höfum mikla möguleika í fiskvinnslu, við höfum líka mikla möguleika í smærri fyrirtækjum, í einyrkjafyrirtækjunum. Við megum ekki bara einblína á stóru og stærstu fyrirtækin. Við megum ekki bara einblína á hina stóru banka og halda að lausnin sé að bjarga þeim. Það er mikilvægt að hafa gott fjármála- og bankakerfi en stærð þess þarf líka að miðast við íslenskar aðstæður. (Gripið fram í: Þú ert stjórnarsinni.)
Ég horfi einmitt á raforkumálin. Hjá okkur í morgun var fulltrúi okkar vinstri grænna í stjórn Rariks, Árni Steinar Jóhannsson, og hann lýsti því hve einkavæðingin og markaðsvæðing raforkunnar í tíð Framsóknarflokksins og hæstv. fyrrverandi iðnaðarráðherra Valgerðar Sverrisdóttur, leikur atvinnulífið núna grátt, sérstaklega úti um land. (Gripið fram í.) Hann minnti meira að segja á það að kannski væri eitt það brýnasta að vinda ofan af markaðsvæðingu raforkukerfisins og setja það aftur í eitt þjónustufyrirtæki, ekki deila því upp í samkeppnisþátt, flutningskerfi og orkusölu. Hann minntist einnig á það hvernig við gætum beitt Rarik einmitt núna til þess að styrkja raforkukerfið í landinu, dreifikerfið vítt og breitt um landið. Áherslan hefur öll verið á stóriðjuna (Gripið fram í.) en raforkukerfið út til hinna dreifðu byggða, út til hinna minni staða hefur algjörlega setið eftir. Ég tel því að nú sé mikilvægt að taka Rarik og beita því. Núna er unnið hörðum höndum að því að koma hér málum í gegn til að snúa aftur af þeirri braut einkavæðingar og markaðshyggju sem rak þjóðfélagið áfram á undanförnum árum.
Hæstv. fjármálaráðherra minntist á að nú væru kannski að skapast þær aðstæður að hægt væri að hefja vaxtalækkanir. Ég er alveg sammála honum í því að vaxtalækkun og það að ná niður verðbólgunni sé eitt brýnasta hagsmunamálið bæði fyrir einstaklinga, heimili og atvinnulíf í landinu og það hlýtur að vera forgangsatriði. (Gripið fram í.) Ég tel að það eigi að gera það, já. Ég tel að verið sé að skapa það umhverfi nú að hægt sé að framkvæma (Forseti hringir.) góðar og sterkar og miklar vaxtalækkanir.