endurreisn efnahagslífsins.
Herra forseti. Ég vil þakka þessa umræðu. Mér finnst að sumir þingmenn hafi eytt of miklum tíma í að horfa til fortíðar því að við þurfum að horfa til framtíðar. Það er ákveðin vinna í gangi við að gera upp fortíðina, hún verður gerð upp. En á tímum sem þessum verðum við að hafa skýra framtíðarsýn og við verðum að vita hvað við viljum.
Það er mikið áhyggjuefni að heyra hv. þm. Árna Pál Árnason tala um að vonlaust sé að fara þá leið sem Framsóknarflokkurinn hefur lagt til með niðurfærslu skulda um 20%, (Gripið fram í.) því að hvert er raunverulegt verðmæti skuldabréfa bankanna á erlendri grund? Það er verðlagt á 7–20%. Erlendir aðilar hafa nefnilega ekki trú á því að verðmætið sé meira en þetta. Það eru sameiginlegir hagsmunir á milli okkar sem þjóðar og kröfuhafanna að okkur vegni vel í framtíðinni. Ef við hefðum ríkisstjórn sem mundi ræða við kröfuhafana á þeim nótum að með því að lækka þessar skuldir um 20% værum við að afstýra kerfishruni, við værum að bæta eignasafn þeirra, ef ríkisstjórnin mundi viðhafa slíkan málflutning að báðir aðilar mundu hagnast á þessu væri kannski annað hljóð í strokknum þegar hæstv. ráðherrar vitna til viðræðna við kröfuhafa. Það skiptir nefnilega máli hvernig stjórnvöld haga málflutningi sínum.
Við framsóknarmenn segjum: Það eru hagsmunir beggja aðila að fara þessa leið vegna þess að eignasafn erlendu aðilanna mun batna fyrir vikið og líkurnar á kerfishruni hér á landi munu minnka. Menn verða að átta sig á þessu, menn mega ekki loka augunum fyrir þessu. Við höfum fengið mjög hæfa sérfræðinga til að leggja mat á þetta og menn geta einfaldlega ekki slegið þessa hugmynd út af borðinu með einu pennastriki. Hagsmunir þjóðarinnar eru undir.
Það eru 90 þúsund einstaklingar í þessu landi á aldrinum 25–45 ára. Þessir 90 þúsund einstaklingar eiga 90 þúsund börn. Þetta er fólkið sem ætlar að standa undir íslensku samfélagi til framtíðar. Þetta er skuldugasta kynslóð Íslandssögunnar. Við framsóknarmenn viljum koma til móts við þessa 180 þúsund þegna íslensku þjóðarinnar með því að lækka skuldir þeirra og skuldbindingar þannig að þessar fjölskyldur geti risið undir skuldum sínum.
Ég sætti mig einfaldlega ekki við það, hæstv. forseti, að menn skuli slá slíkar hugmyndir út af borðinu, bara sisvona. Það er hægt að ræða við erlendu kröfuhafana um að það séu sameiginlegir hagsmunir fyrir því að við komum í veg fyrir þetta kerfishrun. Hér er hver dagur dýrmætur og ég er því miður, hæstv. forseti, mjög efins um að ríkisstjórnin sé á réttri leið við að leita lausna á erfiðu (Forseti hringir.) ástandi á heimilum og í fyrirtækjum. Ég hvet hana (Forseti hringir.) til dáða og ég hvet (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra til þess að gefa efnahagstillögum Framsóknarflokksins (Forseti hringir.) meiri gaum en hún hefur gert.