136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.

321. mál
[17:17]
Horfa

Ásta Möller (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég átti þess kost að sitja einn fund nefndarinnar sem varamaður og einmitt á þeim fundi var breytingartillaga hv. þm. Péturs Blöndals við frumvarpið til umræðu og þá komu einnig fulltrúar lífeyrissjóðanna til að gefa álit sitt á tillögu hans.

Það var alveg ljóst á viðbrögðum fulltrúanna að þeim leist mætavel á tillögur hv. þingmanns. Ég ætla ekki að rekja hana hér en hv. þingmaður veit alveg hvað ég á við. Ég skildi það svo að það yrði skoðað á milli umræðna að fara ítarlegar ofan í hvað hún mundi þýða og hvernig það yrði útfært. En það var alveg ljóst af viðbrögðum fulltrúa lífeyrissjóðanna að þeir gátu séð það að tillaga hv. þingmanns mundi mæta mun betur bæði þörfum almennings og ekki síður vanda lífeyrissjóðanna en sú tillaga sem ríkisstjórnin leggur til. Ég heyrði á ræðu hv. þingmanns og nefndaráliti hans að þessi tillaga yrði skoðuð nánar eftir að frumvarpið verður að lögum en það segir sig náttúrlega sjálft að þegar komin er á ákveðin framkvæmd sem er svona eins og títuprjónaaðferð, þ.e. hún mætir í mjög litlum mæli þörfum og væntingum almennings um úrlausn í þessum málum, um að nota séreignarlífeyrissparnaðinn til að mæta greiðsluerfiðleikum sínum. Þá hlýtur maður að velta fyrir sér hvað veldur því að ekki er farin sú leið sem hv. þm. Pétur H. Blöndal leggur til og lífeyrissjóðirnir sjálfir, stjórnir lífeyrissjóða eða fulltrúar þeirra töldu vera mun heppilegri leið, bæði til að mæta vanda heimilanna og ekki síður vanda lífeyrissjóðanna sjálfra.