136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.

321. mál
[18:51]
Horfa

Ásta Möller (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég hef kannski ekki verið alveg nægilega skýr áðan en ég var fyrst og fremst að fiska eftir því hvað það þýðir ef einstaklingar fara fyrst að útleysa séreignarsparnað sinn eftir þeim reglum sem hér er lagt upp með, milljón á 10 mánuðum, en síðan er tekin ákvörðun um að fara yfir í kerfi hv. þingmanns — hvaða afleiðingar gæti það haft og hvernig lítur það út, annars vegar gagnvart lífeyrissjóðunum og hins vegar gagnvart jafnræðishugsjón?

Ég veit að hv. þm. Ellert B. Schram mun koma í andsvar á eftir, það er kannski ekki viðeigandi að ég beini til hans spurningu en mér þætti hins vegar áhugavert að vita, þar sem ég hafði ekki færi á honum að öðru leyti að spyrja hann að því, af því að ég vissi að hann var pínulítið skotinn í þessari hugmynd, hvað hafi orðið til þess að hann var ekki tilbúinn til að fylgja henni eftir.