skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.
Frú forseti. Ég þakka fyrir gagnlegar umræður seinni partinn í dag. Þær hafa verið fróðlegar og raunar hefur verið dregin upp sú mynd af þessu máli að það sé mjög viðkvæmt og flókið vegna þess að á því eru tvær hliðar, annars vegar skuldir heimilanna og einstaklinganna og svo hins vegar hagur lífeyrissjóðanna og hvaða áhrif þetta hefur á þá.
Okkur er líka flestum kunnugt um að þetta mál hefur lengi verið á dagskrá hjá þingflokkunum, m.a. hjá stjórnarflokkunum Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu á sínum tíma, fram eftir öllu hausti. Menn áttu erfitt með að komast að einhverri niðurstöðu með það vegna þess að málið er afar flókið. Ég minni líka á að þingflokkur sjálfstæðismanna eða einhver úr þeirra hópi hefur flutt hér mál sem gengur miklum mun lengra og hefur lítið verið rætt vegna þess að ég geri ráð fyrir að menn hafi áttað sig á því að það væri gallað.
Það frumvarp sem hér liggur fyrir lagt fram er vegna þrýstingsins um að fólk geti notað þá peninga sem það á í séreignarsparnaði til að bjarga sér út úr einhverjum skuldum. Þetta frumvarp er samið í samráði við lífeyrissjóðina, þetta er það sem þeir treystu sér til að ganga lengst.
Ég held að það fari ekki á milli mála að ef við viljum breyta einhverju þarf það miklu betri athugun vegna þess að hér er í húfi jafnræðið, lausaféð sem sjóðirnir eiga og í þriðja lagi náttúrlega hver ávöxtunin verður hjá þeim sem eftir eru þegar búið er að selja kannski allar bestu eignirnar.
Þegar hv. þm. Ásta Möller spyr hvað hafi breytt minni afstöðu — ég hef bara hlustað, ég vil gjarnan reyna að finna einhverja skynsamlega niðurstöðu í þessu, það er ekki einfalt að leysa úr þessu og ég hef tekið þá ákvörðun að vernda hagsmuni lífeyrissjóðanna til lengri tíma frekar en að hlaupa til og (Forseti hringir.) gera þeim ókleift (Forseti hringir.) að standa við sinn hlut. Ég hef ekki mikið meiri tíma til að svara þessu en á þá leið (Forseti hringir.) að mér finnst þetta vera fyrsta skrefið og það sé hægt að athuga þá leið sem hv. þm. Pétur Blöndal hefur stungið upp á (Forseti hringir.) í framhaldinu.