136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.

321. mál
[18:56]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og skattn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Ellert B. Schram undirstrikaði eiginlega tímaleysið og hvað málin eru unnin hratt og því miður dálítið flausturslega. Fyrsta frumvarp ríkisstjórnarinnar er unnið í samráði við lífeyrissjóðina og upphæðinni er dreift á 10 mánuði o.s.frv. Upphæðin er nægilega lág fyrir lífeyrissjóðina til þess að þeir teldu sig geta ráðið við hana miðað við að svo og svo margir mundu leysa út en alls ekkert með hliðsjón af þörfinni.

Menn láta leiða sig áfram af einhverri misskilinni jafnræðisumræðu. Við erum með alls konar misrétti, t.d. geta þeir sem eru sextugir eða eldri tekið út og það er enginn sem gætir þess hvar jafnræðið sé á milli þess sem er 59 ára og hins sem er sextugur. Þarf ekki að gæta jafnræðis þar á milli? Menn eru t.d. með alls konar kvaðir um endurgreiðslu á fasteignagjöldum fyrir aldraða og öryrkja án þess að gæta jafnræðis á milli fólks. Það er kannski einhver vinnandi maður eða námsmaður með enn þá lægri tekjur og hann fær ekki niðurfellingu á fasteignagjöldum þannig að við göngum mjög víða langt í því að brjóta jafnræði til þess að vernda ákveðna hagsmuni, t.d. öryrkja og aldraðra. Mér finnst bara að þeir hagsmunir, þegar fólk er að missa heimili sitt, séu ekkert síðri, ekki minna um vert að reyna að bjarga þeim, jafnvel þótt það sé á kostnað jafnræðis, þegar menn standa frammi fyrir því að gusa út peningum eins og frumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir þannig að það jafnvel skaði lífeyrissjóðina og þá sem eftir sitja og búi til ójafnræði þar á milli sjóðsfélag og milli þeirra sem fá fyrst og svo hinna sem missa af lestinni af því að Fjármálaeftirlitið bannar frekari útgreiðslur. (Forseti hringir.)