136. löggjafarþing — 97. fundur,  9. mars 2009.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.

321. mál
[22:05]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það vekur manni ugg að horfa upp á þær leiksýningar sem eru settar á svið hér. (Gripið fram í.) Hér eru hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins að verða sér og Alþingi til skammar með þessum fíflagangi sem á sér nú stað. Hæstv. forseti, þetta veldur manni auðvitað vonbrigðum og ég get ekki betur séð en að verið sé að sýna það og sanna með þessum gjörningum Sjálfstæðismanna að þetta er leikhús. (Gripið fram í: Ert þú aðalleikarinn?)