136. löggjafarþing — 98. fundur,  10. mars 2009.

störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Pétri Blöndal að það er nauðsynlegt að við ræðum alvarlega stöðu efnahagsmála hér á vettvangi þingsins. Ég vil líka vekja athygli á því að í gær var hér umræða sem við framsóknarmenn hófum einmitt um stöðu efnahagsmála og þar ræddum við fall Straums – Burðaráss fjárfestingarbanka, en ég er sammála hv. þingmanni að við þurfum að ræða þau mál ítarlega á vettvangi efnahags- og skattanefndar eins og boðað hefur verið.

Ég finn fyrir því í samfélaginu að fólk kallar eftir því að stjórnmálamenn hafi þor og dug í sér til að ráðast í róttækar aðgerðir í efnahagsmálum eins og við framsóknarmenn höfum lagt til. Það er ekki eðlilegt ástand í samfélaginu og þess vegna fagna ég því að við munum ræða þetta mál á vettvangi efnahags- og skattanefndar, því að það getur blasað við mjög erfið staða ef við ætlum að fljóta sofandi að feigðarósi. Ég vil því taka undir með hv. þingmönnum að það er mikilvægt að ræða þetta mál á Alþingi og það er líka mikilvægt að við högum málflutningi okkar í sölum Alþingis með markvissum hætti því að það er lítill tími eftir af starfstíma þingsins og við þurfum að koma mörgum málum í gegn, m.a. stjórnlagaþingi sem við framsóknarmenn höfum lagt áherslu á. Vonandi verður sú umræða í dag markviss og ítarleg því að hér er um mjög mikilvægt mál að ræða. Ég legg áherslu á það frumskilyrði okkar framsóknarmanna að við komum stjórnlagaþingi í gegn áður en Alþingi fer heim. Krafa er um það í samfélaginu og að því ætlum við að stefna. Ég geri þar af leiðandi ráð fyrir að við munum funda hér mörg kvöld og jafnvel nætur til þess að koma miklum hagsmunamálum í gegn, enda er það krafa almennings í samfélaginu að Alþingi sé að störfum og við komum eins miklu í verk og hægt er á þeim stutta tíma sem við höfum til stefnu.