störf þingsins.
Herra forseti. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni hversu lítinn áhuga ríkisstjórnarflokkarnir hafa á því að ræða hér um stöðu efnahagsmála, Icesave-málið, endurreisn bankanna (Gripið fram í: Sjávarútvegsmálin og kvótann.) og uppbyggingu atvinnulífsins. Stjórnarflokkarnir hafa mestan áhuga á því, eins og margoft hefur komið hér fram, með fulltingi Framsóknarflokksins að ræða um stjórnlagaþing og breytingar á stjórnarskránni (Gripið fram í: Hvað er svo …?) sem við vitum að mun ekki endurreisa bankana eða koma hjólum atvinnulífsins í gang á nýjan leik. (Utanrrh.: … í öðru máli.)
Í gær féll Straumur fjárfestingarbanki, hæstv. utanríkisráðherra, og ríkisstjórnin hefur ekki sýnt neinn vilja til þess að ræða um það fall og þýðingu þess fyrir þjóðarbúið. Þetta er auðvitað heilmikið mál, eins og hv. þm. Pétur H. Blöndal nefndi hér, fyrir eigendur bankans, starfsfólk og stjórnendur bankans, fyrir þjóðarbúið og fyrir ríkissjóð (Gripið fram í: Íbúðalánasjóð.) vegna þess að Íbúðalánasjóður átti gríðarlega hagsmuni inni í Straumi. Það áttu lífeyrissjóðirnir líka. Hæstv. utanríkisráðherra hefur engan áhuga á að ræða þessi mál heldur vill fara í það að breyta stjórnarskránni og breyta kosningalögum.
Ég tek undir það að efnahagsmálin og endurreisn bankakerfisins eru þau mál sem við eigum að ræða hér, það eru lykilmálin. Við eigum að ræða um útlánastefnu bankanna og með hvaða hætti menn veittu lán til ýmissa vildarvina sinna, t.d. til snekkjukaupa eins og við höfum horft upp á í fréttum upp á síðkastið. (Gripið fram í.) Ég hefði talið að hæstv. forsætisráðherra ætti að koma fyrir þingið og fjalla um það og gefa þinginu skýrslu um það hvernig hann og ríkisstjórn hans hyggst endurreisa bankana. (Gripið fram í: Í dag?) Ekki hafa komið fram (Forseti hringir.) nein skýr sjónarmið frá ríkisstjórninni um það (Forseti hringir.) hvernig þeim málum eigi að vera háttað. Ég kalla eftir því að ríkisstjórnin fari að einbeita sér að þeim málum (Forseti hringir.) sem skipta einhverju máli fyrir þjóðina. (Gripið fram í: Eins og … í gær?)