136. löggjafarþing — 98. fundur,  10. mars 2009.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.

321. mál
[14:14]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Ég er sannfærður um að þeir eru margir sem eru ekki sammála hv. þm. Pétri H. Blöndal um að það muni ekki skipta máli fyrir þá að fá á næstu mánuðum 600–700 þús. kr. til að bæta stöðu fjölskyldu sinnar á þessum erfiðu tímum. Ég fæ engan botn í málflutning Sjálfstæðisflokksins í þessu máli og þegar upp er staðið eftir allt rausið styðja allir þingmenn í salnum frumvarpið. Það segir allt sem segja þarf um ræðuhöldin í gær og að undanförnu.

Ég þakka efnahags- og skattanefnd fyrir góða vinnu að þessu máli og ég ítreka þá yfirlýsingu sem ég gaf við 1. umr. málsins að það verður skoðað áfram í fjármálaráðuneytinu hvort hægt sé og mögulegt að ganga lengra í ljósi þess hvernig þessi aðgerð gengur og reynist og hvað sjóðirnir eða vörsluaðilarnir þola. Hér er farin ábyrg og raunsæ leið. Hér er reynt að koma til móts við þarfir fólksins og gengið eins langt í þeim efnum og talið er verjandi og talið er mögulegt en ekki lengra. Ég held að hafi menn einhverja betri tillögu fram að færa í málinu en að gera þetta um það bil svona þá hef ég a.m.k. ekki heyrt hana enn þá og hefur þó ekki skort ræðutímann til að koma henni á framfæri.