136. löggjafarþing — 98. fundur,  10. mars 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[14:53]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Allur málflutningur hv. þingmanns um samstöðu og samráð fellur á hans eigin klofbragði því að hann flutti jú sjálfur aðeins fyrir tveggja flokka hönd tillögu til breytingar á stjórnskipunarlögum. Hér standa þó fjórir flokkar að og ég geri satt að segja ekki mikið með það, virðulegur forseti, þó að á 50 ára fresti þurfi að afgreiða breytingar á stjórnarskrá í andstöðu við einn staðnaðan kerfisflokk, Framsóknarflokkinn 1959 og Sjálfstæðisflokkinn 2009.

Geir H. Haarde segir: Hefur þetta ekki verið svona um áratugaskeið? Hvaða knýjandi nauðsyn er uppi nú? Það er eins og hv. þm. Geir H. Haarde hafi ekki enn þá áttað sig á því að hér hrundi kerfið 6. október sl. Og það var ekki bara fjármálakerfið, það var stjórnkerfið og Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að átta sig á því.

Ég hlýt að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki að efnislegar röksemdir séu fyrir því að ríkur þáttur í hruninu hafi verið skortur á aðhaldi Alþingis með framkvæmdarvaldinu. Hvort pólitísk spilling í embættisveitingum Sjálfstæðisflokksins hafi ekki verið ríkur þáttur í hruninu, m.a. í sjálfu dómskerfinu, (Gripið fram í: Svo á að skerða þingið.) pólitískt ofbeldi í því að leggja niður ráðgjafar- og eftirlitsstofnanir eins og Þjóðhagsstofnun. Hvort ekki séu augljós fjölmörg efnisleg dæmi úr sögu sautján ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins til að það sé knýjandi verkefni, alveg eins og efnahagsmálin, að taka til endurskoðunar grundvallaratriði í stjórnskipaninni og kjósa til stjórnlagaþings.