136. löggjafarþing — 98. fundur,  10. mars 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[15:29]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Tíma þingsins síðasta föstudag hefði örugglega verið betur varið í þau mál heldur en að horfa upp á þingmenn Sjálfstæðisflokksins fara hér í unnvörpum í andsvör hver við annan sem er eiginlega fáheyrður atburður. Ég get því ekki séð að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi í umræðum síðasta föstudag verið eitthvað sérstaklega að greiða fyrir þingstörfum. Alls ekki.

Og þegar hv. þingmaður spyr um vinnubrögðin þá vil ég minna hann á að við erum hér í mjög sérstöku andrúmi og það voru ekki nein sérstök vinnubrögð þegar við settum neyðarlögin. Það voru ekki heldur nein sérstök vinnubrögð þegar við settum gjaldeyrishöftin á í skjóli nætur.

Það er mjög sérstakt ástand í samfélaginu (Gripið fram í.) og mér finnst að hv. þingmaður hafi ekki alveg skilning á því hvaða krafa er í samfélaginu um breytingar. Krafa um að ráðist verði í það mál sem við leggjum hér til, stjórnlagaþing. Við skynjum umhverfi okkar greinilega með mjög ólíkum hætti. Ég segi: Það liggur á (Forseti hringir.) í ljósi þess ástands sem er í (Forseti hringir.) íslensku samfélagi að við afgreiðum þetta mál.