stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Ég verð að taka undir með þeim hv. þingmönnum Sigurði Kára Kristjánssyni og Sturlu Böðvarssyni að það er alls ekki viðunandi að 1. flutningsmaður og forsætisráðherra sé ekki viðstaddur umræðuna og hafi nánast ekkert verið hér í dag frá því að umræðan hófst. Það er ekki bara þannig að hún sé 1. flutningsmaður heldur er stjórnarskráin og stjórnskipunin auðvitað á forræði forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Flutningsmenn eru auðvitað fleiri og þeir eru hér og við virðum það. En þótt ég meti hæstv. fjármálaráðherra mikils og embætti hans þá kemur það í þessu tilfelli einfaldlega ekki í staðinn fyrir það að hæstv. forsætisráðherra sé viðstödd umræðuna til að hlusta á það sem hér fer fram.