136. löggjafarþing — 99. fundur,  11. mars 2009.

aðildarumsókn að ESB– Icesave.

[12:32]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þetta er merkileg umræða því að hér er sá maður sem er á hraðbraut í það að verða formaður Sjálfstæðisflokksins eftir nokkra daga og hann lýsir því yfir að hann telji, eins og hann taldi í desember, að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu og ná um það samstöðu. Ég tek eindregið undir það að við eigum að reyna eins og við getum að ná þessu máli upp úr skotgröfum og hjólförum deilna síðustu ára og áratuga eins og hv. þm. Pétur Blöndal reyndi svo hressilega að hlamma því ofan í áðan með afskaplega ómálefnalegum hætti.

Þetta er einfaldlega stærsta og mesta úrlausnarefni íslensku þjóðarinnar núna. Þetta er partur af lausn á bráðavandanum og það er mjög mikilvægt atriði að næsta ríkisstjórn, hver sem hún verður, nái samstöðu um að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu og þessum málum komið í farveg. Það væri glapræði af ríkisstjórn sem verður mynduð eftir kosningar í vor að skjóta þessu máli á frest og skjóta þar með framtíð íslensku þjóðarinnar á frest aftur. Það voru mistök síðast sem má ekki endurtaka á ný.

Ég tek undir með hv. þm. Ármanni Kr. Ólafssyni að þetta mál verður ekki leyst með þrátefli, þrasi og deilum í áratugi í viðbót. Við munum aldrei vita (Gripið fram í: … vinstri grænir …?) hvað við fáum út úr þessu fyrr en við sækjum um aðild. Vinstri grænir svara að sjálfsögðu fyrir sig. Við sem erum talsmenn Samfylkingar túlkum sjónarmið okkar. Við viljum sækja um aðild að sambandinu og við teljum að það væri glapræði að mynda ríkisstjórn sem setti þetta mál aftur til hliðar. Þetta er stærsta málið og það verður að leysa. Þess vegna verða allir flokkarnir, eins og hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði áðan, að ganga til leiks í vor með skýra sýn á það hvort þeir vilja sækja um aðild að Evrópusambandinu eða ekki af því að um þetta á að kjósa í vor og um þetta meðal annars á að mynda ríkisstjórn í vor. (Gripið fram í.)