136. löggjafarþing — 99. fundur,  11. mars 2009.

bráðabirgðalög.

318. mál
[12:40]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég stóð að því á sínum tíma að setja þessi bráðabirgðalög. Ég tel að það hafi verið fullkomlega réttlætanlegt og nauðsynlegt á þeim tíma. Það var partur af mjög ágætum viðbrögðum ríkisvalds, almannavarna og sveitarstjórna á þeim tíma. Miklar náttúruhamfarir riðu yfir þéttbýlt svæði. Tjón á innbúum varð mikið og var óttast um tíma að tjón væri talsvert meira á húseignum, innbúi o.fl. en síðar kom í ljós. Það gekk mjög vel að greiða úr þessum málum og fyrir það eiga margir þakkir skildar. Ég tel að setning bráðabirgðalaganna hafi verið réttmæt og nauðsynleg á þeim tíma og Alþingi staðfesti þau nokkrum mánuðum síðar. Það vildi þannig til að jarðskjálftinn reið yfir daginn sem Alþingi var að ljúka störfum og þess vegna þurftum við að grípa til þeirra ráða að setja bráðabirgðalög að gefnu tilefni vegna alvarlegra og stórbrotinna náttúruhamfara.