136. löggjafarþing — 99. fundur,  11. mars 2009.

bráðabirgðalög.

318. mál
[12:41]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kristinn H. Gunnarsson) (U):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að svör hæstv. forsætisráðherra eru mér mikil vonbrigði vegna þess að þau lýsa því sem hefur kannski verið helsta vandamálið varðandi heimild til bráðabirgðalaga, að ráðherrarnir túlka það sjálfir hvenær þeir telja þörf á að nota heimildina og fara gegn lögskýringargögnum sem má finna í skjölum Alþingis, bæði nefndarálitum og framsöguræðum þeirra sem mæltu fyrir málinu fyrir hönd alþingismanna á sínum tíma, og er auðvitað skýrt dæmi um að það er algerlega rangt að láta ráðherrum eftir heimild til að setja lög. Þeir munu ekki beita þeirri heimild eins og ætlast er til heldur túlka hana eftir því sem þeim þykir þurfa á hverjum tíma.

Í þessu máli var það ákvörðun ráðherra og ríkisstjórnarinnar að sniðganga Alþingi. Það er annað mál hvort ástæða hafi verið yfir höfuð til þess að gera breytingar á lögunum en það var þá Alþingis að meta það og Alþingi sat þegar atburðirnir urðu. Alþingi gat komið saman til fundar hvenær sem var og til þess var breytingin gerð 1991 að Alþingi gæti komið saman með skömmum fyrirvara þegar þörf væri á að ósk ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin valdi hins vegar þá leið að kalla Alþingi ekki saman af því að hún vildi ekki kalla Alþingi saman. Hún vildi ekki leggja málið fyrir Alþingi og eftirláta þinginu að meta hvort rétt væri að setja löggjöf og þá hvernig, heldur ákvað að gera það sjálf og láta Alþingi standa frammi fyrir gerðum hlut. Það gagnrýni ég harðlega, virðulegi forseti, og tel þetta dæmi því miður staðfesta að ráðherrum er ekki treystandi fyrir löggjafarvaldi.