136. löggjafarþing — 99. fundur,  11. mars 2009.

sjálfkrafa skráning barna í trúfélag.

374. mál
[13:00]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja fram fyrirspurn til hæstv. dóms- og kirkjumálaráðherra á þskj. 633, um sjálfkrafa skráningu barna í trúfélög.

Forsaga málsins er sú að í byrjun desember komst Jafnréttisstofa eða lögfræðingur hennar að þeirri niðurstöðu að breyta þyrfti ákvæðum laga um skráð trúfélög sem kveða á um að barn skuli frá fæðingu skráð í sama trúfélag og móðir þess. Í áliti Jafnréttisstofu kemur fram að þetta ákvæði sé tæpast í samræmi við ákvæði jafnréttislaga og engir hagsmunir hvorki fyrir nýfætt barn né aðra að það sé sjálfkrafa skráð í trúfélag.

Jafnréttisstofa fjallaði um málið á grundvelli óska frá einstaklingi um álit Jafnréttisstofu á þessum ákvæðum laganna en í 8. gr. laganna um skráð trúfélög segir að barn skuli frá fæðingu talið heyra til sama trúfélags og móðir þess. Börn eru með öðrum orðum skráð í trúfélag móður strax og tilkynnt er um fæðingu þeirra. Niðurstaða lögfræðings Jafnréttisstofu er að þetta ákvæði sé tæpast í samræmi við jafnréttislögin og bann þeirra við mismunun á grundvelli kyns, þ.e. að kyn, móðernið, ráði því alfarið í hvaða trúfélag barn er skráð frá fæðingu. Álit hans er líka að mikilvægast í þessu máli sé að ekki er að sjá að neinir hagsmunir séu, hvorki fyrir nýfætt barn né aðra, að það sé sjálfkrafa skráð í trúfélag, hvort sem það fylgir skráningu móður eða föður.

Enn fremur er það álit lögfræðings Jafnréttisstofu að það sé meira í samræmi við jafnréttislög og anda þeirra laga sem og jafnrétti og mannréttindi almennt að forsjáraðilar taki ákvörðun um hvort og þá hvenær skrá eigi barn í trúfélag. Þannig þyrfti samþykki beggja forsjáraðila, ef þeir eru tveir, að liggja fyrir til að barn yrði skráð í trúfélag þegar það er yngra en að því sé heimilt að sjá um slíkt á eigin forsendum.

Hér er að mínu mati um að ræða mikilvægt jafnréttis- og mannréttindamál og eðlilegast væri að þessu væri farið eins og lögfræðingur Jafnréttisstofu telur eðlilegast, að samþykki beggja forsjáraðila þurfi til, ef þeir eru fleiri en einn, og að börn séu ekki sjálfkrafa skráð í trúfélög heldur sé það ákvörðun forsjáraðilanna, hvort sem þeir eru einn eða fleiri, hvernig þeim málum er háttað.

Þess vegna hef ég lagt eftirfarandi fyrirspurn fram til hæstv. dóms- og kirkjumálaráðherra:

„Telur ráðherra ástæðu til að breyta ákvæðum laga þannig að forsjáraðilar taki sameiginlega ákvörðun um skráningu barns í trúfélag þegar og ef þeir kjósa svo, í samræmi við það álit lögfræðings Jafnréttisstofu að sjálfkrafa skráning barna í trúfélag móður standist tæpast jafnréttislög?“