136. löggjafarþing — 99. fundur,  11. mars 2009.

sjálfkrafa skráning barna í trúfélag.

374. mál
[13:07]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir góða fyrirspurn eftir þann merkilega viðburð, sem ég tel það vera að lögfræðingur Jafnréttisstofu hafi gefið þetta álit. Ég þakka líka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið sem ég tel að sé nákvæmlega rétt, að þetta álit gefi tilefni til þess að rannsakað sé í ráðuneyti ráðherrans hvort ekki sé ástæða til að breyta þessu og mér heyrist ráðherrann telja að svo sé.

Ég vil líka taka undir með ráðherranum, það eru auðvitað fyrst og fremst hagsmunir barnsins sem hér ber að hafa í huga en einnig á að fara eftir jafnréttislögum og fylgja almennum mannréttindum. En ég verð að segja að ég tel fulla ástæðu til að óskað verði skráningar í trúfélag þar sem ekki er um að ræða aðild að (Forseti hringir.) samfélagi á sama hátt og ríkisborgararéttur eða fast aðsetur, eins og lögheimili, sem allir eiga að hafa.