136. löggjafarþing — 100. fundur,  11. mars 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[15:55]
Horfa

Atli Gíslason (Vg):

Frú forseti. Ég fagna þessu frumvarpi til stjórnarskipunarlaga. Það tekur á afar mikilsverðum mannréttindum og er til styrktar lýðræðinu. Það er til styrktar því að þjóðin eigi aðkomu að ákvörðunum í þjóðfélaginu.

Ég vil líka segja hvað efnisatriði frumvarpsins varðar, eins og skýrt kom fram í ræðu hæstv. iðnaðarráðherra Össurar Skarphéðinssonar, að sjálfstæðismenn eru að meginstefnu til sammála þeim efnisatriðum sem þar koma fram, nema ef vera skyldi stjórnlagaþingið, þannig að í einlægri, heiðarlegri og faglegri nefndarvinnu er unnt að ná sátt um þær breytingar. Ég skora á sjálfstæðismenn að fara í málið á þeim grundvelli en ekki á grundvelli þess að tefja framgang mikilsverðra mála fyrir heimilin og atvinnulífið í landinu. (Gripið fram í.) Þær eru það þegar langvarandi stuðningur við lífeyrissjóðsfrumvarpið, séreignarsjóðinn, tekur heilan dag ef allir þurfa að tjá sig í Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki hugsunarháttur okkar Vinstri grænna vegna þess að við höfum talsmenn í málum. (Gripið fram í.) Við höfum talsmenn í málum og ég minni hv. þm. Sturlu Böðvarsson á að eftir 6. október komu hér fram mörg lagafrumvörp, sem var brýnt að afgreiða. Við stóðum faglega að því allan tímann, vorum ekki með nokkurt málþóf og reyndum að hraða meðferð þeirra mála. Ég minni á frumvarpið um rannsóknarnefndina og sérstakan saksóknara þar sem við lögðum okkur í líma við að koma því fram eins hratt og unnt var með góðri samvinnu við hv. fyrrverandi forseta Alþingis. Það skyldu sjálfstæðismenn taka til fyrirmyndar hvernig við komum að málum frá 6. október og þar til fyrri ríkisstjórn féll, menn skyldu taka það til fyrirmyndar. (Gripið fram í.)

Þið hafið talað svo mikið í þessum þingsal nú nýverið (Forseti hringir.) að hv. þingmaður ætti að láta vera (Forseti hringir.) að grípa fram í.

(Forseti (GSB): Forseti minnir á að hv. þingmaður hefur orðið.)

Þetta eru mikilvæg efnisatriði sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur að mestu leyti samþykkt. Það er alveg sjálfsagt að náttúruauðlindirnar séu þjóðareign, þær sem ekki eru háðar einkaeignarrétti, þó að ríkið fari með forsjá þeirra. Í 2. mgr. er afar mikilvæg regla um að nýta eigi náttúruauðlindir á sem hagkvæmastan hátt á grundvelli sjálfbærrar þróunar og ég fagna því gríðarlega. Sjálfbær þróun gæti eiginlega verið pólitísk stefnumótun Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að við vinnum ekki óafturkræf náttúruspjöll á umhverfi okkar.

Í 3. mgr. er sagt að allir eigi rétt til umhverfis sem stuðlar að heilbrigði. Þetta er alþjóðleg þróun í umhverfisrétti, bæði pólitísk og lögfræðileg. Ég minni á að þessi þróun gengur út á það að tryggja rétt einstaklingsins, sem Sjálfstæðisflokkurinn ber mikið fyrir brjósti, þ.e. að virkja einstaklinginn til umhverfisverndar. Ég minni sérstaklega á Ríó-yfirlýsinguna frá 3.–14. júní 1992. Ég get líka minnt á lög um Evrópska efnahagssvæðið þar sem frumtilgangur varðandi umhverfisvernd er að tryggja aðkomu og rétt einstaklingsins að ákvarðanatöku. Þetta stjórnarskrárfrumvarp mælir fyrir um það. Með leyfi frú forseta, vildi ég lesa úr Árósasamningnum grundvöll þess að þetta er komið inn í stjórnarskrána, sjálfbær þróun og heilbrigt umhverfi.

Tilvísunin er svona:

„Árósasamningurinn er ný tegund samnings um umhverfismál. Hann tengir saman umhverfisrétt og mannréttindi. Hann viðurkennir að menn hafi skyldum að gegna gagnvart komandi kynslóðum. Samningurinn staðfestir að sjálfbærri þróun verður ekki náð án aðildar allra hagsmunaaðila og tengir saman ábyrgð stjórnvalda og umhverfisvernd. Hann beinir athyglinni að gagnverkandi áhrifum almennings og stjórnvalda í lýðræðislegu samhengi og kveður á um ný ferli varðandi þátttöku almennings í viðræðum um alþjóðlega samninga og framkvæmd þeirra.“

Síðan segir:

„Í formála samningsins eru umhverfisvernd og mannréttindi tengd saman og réttindum í umhverfismálum veitt sama staða og öðrum mannréttindum.“

Um hvað tala menn hér í grunninn? Friðhelgi einkalífsins, réttinn til lífsins, réttinn til heilsusamlegs umhverfis og að vernda einstaklinginn. Þar er líka talað um það sem fram kemur í 3. mgr. 1. gr.

Ég vil aðeins gera 2. gr. að umtalsefni. Ég tel hana afar mikilvæga og gæti séð hana verða að lögum. Hv. þm. Björn Bjarnason spurði mig, eða okkur í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, hvort þetta auðveldaði eða hefti ESB-aðild. Ég lít eindregið svo á að þetta færi þjóðinni það vald að taka ákvörðun um hvort við göngum í ESB eða ekki. (Gripið fram í.) Ég lít ekki svo á varðandi 1. gr en ákvæði 2. gr. er gríðarlega mikilvægt og allir reyndir þingmenn vita að við höfum breytt stjórnarskránni, síðan fært það inn í alþingiskosningar þar sem allt önnur málefni eru frammi, allt önnur málefni verða mikilvægari þar þannig að við getum tekið jafnstórt mál og ESB-málið og greitt um það þjóðaratkvæði. Ég er alveg viss um það út frá köldu hagsmunamati að nei-meirihlutinn verður meiri á Íslandi en í Noregi vegna þess að nei-hagsmunirnir varðandi fiskveiðar, landbúnað o.fl. hafa meira vægi en í Noregi þar sem iðnaður er þó sterkari grein.

Það heitir líka að vera sammála um að vera ósammála. Við getum verið sammála um að vera ósammála en færa þjóðinni það vald að ákvarða hvort við göngum í ESB eða ekki. Ég treysti henni fullkomlega til að taka ákvörðun um það.

Varðandi 3. gr. frumvarpsins var upphaflega í danska ákvæðinu reglan um að 1/3 þingmanna á danska þinginu gæti samþykkt þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér er farin sú leið að 15% kjósenda þurfa að krefjast þess, það munu vera held ég um 30 þúsund kjósendur. Mér finnst sú regla þröng og er sjálfur hlynntari dönsku leiðinni og reynsla Dana af henni hefur verið góð. Þingmenn eru ábyrgðarfullir og fara ekki með mál í þjóðaratkvæðagreiðslu nema nauðsyn beri til. Ég treysti þingmönnum hér á Alþingi til að taka ákvarðanir faglega og leiða ekki inn í þjóðaratkvæðagreiðslur mál sem eru ekki svo mikilvæg að þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi til. Ég treysti þingmönnum og þjóðinni til þess.

Annað sem ég ætla að gera að umtalsefni á þeim stutta tíma sem ég á eftir og verður að skoða vandlega og gagnrýni hefur komið fram um, sem ég get tekið undir, er kostnaðurinn. Þá horfi ég fyrst og fremst á tímalengd þessa nýja þings, frá 1. desember 2009 til 17. júní 2011. Ég hygg að þetta megi leysa frá 1. desember 2009 til 17. júní 2010, það þurfi ekki nema sex mánuði ef menn vanda sig. Ég get líka séð að þingið starfi hér á Alþingi á meðan Alþingi situr ekki í desember og janúar, skipti sér svo niður í nefndir og starfshópa og komi saman aftur þegar þingi lýkur í maí og klári þessi verk, vegna þess að við höfum nokkuð mótaðar hugmyndir um hvernig við viljum hafa þessi mál. (Forseti hringir.) Hægt er að vinna þetta hratt og örugglega og yfirleitt eru góð verk unnin þannig. (Forseti hringir.) Ég bið ekki um að menn hraði þessu um of en vinni þetta hratt og örugglega og af fagmennsku.