heimild til samninga um álver í Helguvík.
Hæstv. forseti. Hvað varðar þetta sem hv. þingmaður kemur inn á, að það skipti máli hvað fer inn og hvað fer út, er hárrétt. Í sambandi við áliðnaðinn kaupum við inn til landsins hráefnið til að bræða og svo er álið flutt út. Að því leyti til eru aðrar atvinnugreinar mikilvægari en engu að síður erum við að skapa gríðarlegan gjaldeyri með áliðnaðinum og við erum að skapa vel launuð störf og þegar mál eru þannig vaxin að allir hafa ávinning af hlýtur það að skipta mestu máli. Ef orkufyrirtækin hafa ávinning af að selja orkuna, álfyrirtækið hagnast á því að bræða ál og starfsfólkið fær góðar tekjur, er í vel launuðum störfum, get ég ekki séð annað en að það skipti mestu máli. Svo geri ég mér grein fyrir því að til þess að við getum reist álver hér á landi þurfum við að virkja fallvötn eða jarðvarma og það getur verið viðkvæmt mál og hefur verið það fram til þessa.
Þegar hv. þingmaður miðar við ferðaþjónustu, sem er líka mjög mikilvæg grein og gjaldeyrisaflandi, verður líka að hafa það í huga að því miður eru mjög mörg ferðaþjónustufyrirtæki í mjög erfiðum rekstri. Þetta er búið að vera mjög mikið baks hjá mjög mörgum aðilum, a.m.k. sem ég þekki til á landsbyggðinni, sem reka slík fyrirtæki. Ég dáist að þolinmæðinni og dugnaðinum að halda því áfram við þær aðstæður sem oft eru mjög erfiðar. Auðvitað þurfum við að horfa til allra átta, hv. þingmaður.