136. löggjafarþing — 101. fundur,  12. mars 2009.

tilkynning um dagskrá.

[10:31]
Horfa

Forseti (Kjartan Ólafsson):

Upp úr klukkan 11 í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram utandagskrárumræða um hagsmuni Íslands vegna Icesave-ábyrgðanna. Málshefjandi er hv. þm. Siv Friðleifsdóttir. Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50 gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Forseti vill jafnframt tilkynna að atkvæðagreiðsla verður klukkan 13.30 í dag.