skerðing almannatrygginga vegna fjármagnstekna.
Virðulegi forseti. Áður en þessi ákvörðun var tekin var farið mjög vandlega ofan í málið einmitt í því skyni að fara leiðir sem kæmu sem best út fyrir fólk sem fær almannatryggingabætur. Eins og hv. þingmaður veit fengu þeir almannatryggingaþegar sem voru með lægstar bætur, fullar verðbætur um sl. áramót sem fóru verulegir fjármunir í og skiptu talsverðu máli fyrir þá bótaþega.
Hv. þingmaður veit það líka að á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins er verið að vinna að endurskoðun á almannatryggingakerfinu, m.a. til að koma í veg fyrir þær víxlverkanir sem eru milli greiðslna úr lífeyrissjóðum og almannatryggingakerfinu. Ég tel alveg sjálfsagt að sú nefnd sem skoðar þetta kanni sérstaklega hvort athugasemd hv. þingmanns eigi við rök að styðjast, að það þurfi að endurskoða þetta með einhverjum hætti að því er varðar verðbæturnar. (Forseti hringir.) Ég tel svo ekki vera vegna þess að við fórum mjög nákvæmlega yfir þetta áður en ákvörðunin var tekin en það er sjálfsagt og eðlilegt að nefndin fari yfir þær athugasemdir sem komið hafa frá hv. þingmanni.