136. löggjafarþing — 101. fundur,  12. mars 2009.

endurskipulagning þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja.

411. mál
[14:36]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um stofnun hlutafélags eða opinbers hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja. Frumvarpið byggist á fyrstu starfsáætlun samræmingarnefndar um endurreisn fjármálakerfisins frá 5. febrúar sl.

Vegna ótvíræðs mikilvægis tiltekinna atvinnufyrirtækja fyrir íslenskt samfélag er nauðsynlegt að starfsemi þeirra raskist ekki þrátt fyrir yfirstandandi erfiðleika. Í frumvarpinu er lagt til að Alþingi veiti fjármálaráðherra heimild til þess að stofna sérstakt opinbert hlutafélag um eignaumsýslu þar sem byggð verði upp heildstæð þekking á endurskipulagningu, fjárhags- og rekstrargrundvelli skuldsettra fyrirtækja. Í félaginu verður þannig unnið að fjárhagslegri og rekstrarlegri endurskipulagningu atvinnufyrirtækja með það að markmiði að gera þau sem fyrst rekstrarhæf á nýjan leik og selja þau síðan með gagnsæjum hætti þegar aðstæður verða hagfelldar.

Ekki er gert ráð fyrir að eignaumsýslufélag þetta taki í sína umsjá mjög mörg fyrirtæki heldur einungis tiltekin þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að slík fyrirtæki sinni svo mikilvægum almanna- eða öryggishagsmunum að stöðvun þeirra um lengri eða skemmri tíma mundi valda verulegri röskun í þjóðfélaginu öllu. Með almannahagsmunum í þessu sambandi er átt við þá starfsemi atvinnufyrirtækja sem snúa að nauðsynlegum grunnþörfum samfélagsins eða eru mikilvægir hlekkir í innviðum þess. Með öryggishagsmunum er t.d. átt við starfsemi sem snýr að fæðuöryggi þjóðarinnar, fjarskiptum, flutningi fólks eða farms milli landa eða innan lands. Þessar skilgreiningar eru þó að sjálfsögðu ekki tæmandi og æskilegt að félagið hafi frekari viðmið til að starfa eftir. Sú leið er því farin í frumvarpinu að lagt er til að stjórn félagsins, að fenginni umsögn Seðlabanka Íslands og aðila vinnumarkaðarins, geri tillögu til fjármálaráðherra um frekari almenn viðmið sem leggja skal til grundvallar því að fyrirtæki gætu fallið í þennan flokk atvinnufyrirtækja. Þegar slík hlutlæg viðmið hafa verið samþykkt gefur fjármálaráðherra þau út í formi reglugerðar. Stjórn félagsins tekur síðan sjálf ákvörðun um það á grundvelli hinna almennu viðmiða reglugerðarinnar hvaða atvinnufyrirtæki falli undir skilgreininguna. Félagið gengur síðan til samninga við fjármálastofnanir um kaupin, enda rúmist þau innan fjárhags félagsins. Miklu skiptir að félag sem þetta verði eins sjálfstætt í störfum sínum og unnt er.

Í dag liggur umfang þessa eignaumsýslufélags ekki að fullu fyrir að sjálfsögðu og því er gert ráð fyrir að þriggja manna nefnd leggi mat á heildarupphæð stofnfjár eða þörf fyrir aukningu þess miðað við áætlað umfang starfseminnar og árlega þörf þess fyrir rekstrarfé. Til þess að hægt verði að hefjast handa um það sem fyrst að stofnsetja félagið, kjósa því stjórn, ráða framkvæmdastjóra og hefja annan undirbúning, þar á meðal að greina umfang vandans og skilgreina viðmið um þjóðhagslega mikilvæga starfsemi er í frumvarpinu gert ráð fyrir 20 millj. kr. stofnframlagi sem greiðist úr ríkissjóði. Gert er ráð fyrir því síðan að þegar félagið hefur hafið starfsemi verði rekstrarkostnaðurinn að einhverju eða jafnvel að öllu leyti borinn af þeim félögum sem tekin verða inn í félagið. Varðandi kaup á eignarhlutum af fjármálastofnunum inn í félagið er gert ráð fyrir að um það verði samið hverju sinni og eftir fremsta megni reynt að tryggja hagsmuni skattgreiðenda og kröfuhafa til framtíðar með því að fá sem mest virði fyrir eignarhlutina í framtíðinni.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að félagið skuli hafa lokið störfum eigi síðar en fimm árum frá stofnun þess og verður því þá slitið. Er þetta gert til þess að undirstrika að um tímabundna ráðstöfun er að ræða og ekki er ætlunin að slíkt félag reki rekstrarhæf atvinnufyrirtæki lengur en brýna nauðsyn ber til. Fjármálaráðherra mun í reglugerð mæla fyrir um hvaða áherslur og viðmið verða höfð til grundvallar við sölu fyrirtækja sem eignaumsýslufélagið kemur til með hafa í sinni umsjá.

Við vinnslu þessa frumvarps hefur verið horft til erlendra fyrirmynda sem eru vel þekktar, m.a. sænskra, en þekkt er að félög af þessu tagi hafi verið stofnuð með ágætum árangri til þess að létta á bankastofnunum vegna umfangsmikilla endurskipulagningarverkefna þannig að þær geti betur sinnt hefðbundinni bankastarfsemi við fyrirtæki og almenning. Aðferðafræðin er þannig kunn og alþjóðlega viðurkennd. Við samningu frumvarpsins var þó horft til þess að aðstæður hér á landi eru um margt ólíkar því sem var t.d. í Svíþjóð. Stærsti munurinn felst án efa í þeirri aðferðafræði sem beitt var hérlendis með setningu laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., þ.e. neyðarlögin svonefndu. Vegna þeirrar ráðstöfunar á eignum og skuldum bankanna í nýja og gamla banka sem gert er ráð fyrir í þeim lögum eiga nýju bankarnir betri möguleika á að koma stærri hluta þeirra fyrirtækja sem eiga í vanda til aðstoðar en ella hefði verið án meiri háttar aðgerða. Þessi er helsti munurinn á aðstæðum eins og þær voru t.d. í Svíþjóð þar sem eignaumsýslufélagið leysti til sín ýmis stór og erfið viðfangsefni frá bönkum sem að sönnu höfðu ekki komist í þrot eða voru til skipta heldur voru á sama tíma endurfjármagnaðir að verulegu leyti eða jafnvel að öllu leyti af því hinu sama ríki, þ.e. sænska ríkinu. Af sömu ástæðum má gera ráð fyrir að megináherslan hjá eignaumsýslufélaginu hér verði að færa eignarhluti í atvinnufyrirtækjum inn í félagið en síður að færa lán eða kröfur yfir í slíkt félag. Með öðrum orðum, hér er ekki verið að stofna banka. Með því næst fram aðskilnaður á eignarhaldi og bankastarfsemi þannig að félagið mun þurfa að semja við kröfuhafa á viðskiptalegum forsendum í samráði við aðra eigendur ef einhverjir eru og sú hlið málsins sem snýr að almennri bankastarfsemi verður áfram hjá hlutaðeigandi fjármálastofnunum. Í frumvarpinu er þó gert ráð fyrir þeim möguleika að félagið geti keypt tilteknar kröfur eða veðskuldir ef þannig aðstæður skapast að slíkt sé metið nauðsynlegt.

Vegna umfangs þess vanda sem blasir við íslenskum fyrirtækjum telur ríkisstjórnin nauðsynlegt að stofna félag sem þetta sem vinni í sátt við bankana og aðila vinnumarkaðarins að endurreisn íslensks atvinnulífs. Með því er eindregið mælt af þeim ráðgjöfum bæði innlendum og erlendum sem íslensk stjórnvöld eiga samráð og samstarf við um þessar mundir.

Herra forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og skattanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari.