136. löggjafarþing — 101. fundur,  12. mars 2009.

lokafjárlög 2007.

408. mál
[14:47]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til lokafjárlaga fyrir árið 2007 sem dreift hefur verið á þingskjali 692.

Frumvarpið er lagt fram til breytingar á fjárheimildum vegna frávika í mörkuðum ríkistekjum stofnana frá áætlunum fjárlaga og til að gera tillögur um ráðstafanir á stöðu fjárheimilda í árslok, annaðhvort með niðurfellingu eða flutningi til næsta árs. Þá er frumvarpið til staðfestingar á niðurstöðum í ríkisreikningi ársins 2007. Uppbygging þess er með sama hætti og verið hefur undanfarin ár og uppgjör og ráðstöfun á fjárheimildastöðum í árslok byggja á sömu vinnureglum og áður.

Í fylgiskjali 2 með frumvarpinu er birt yfirlit yfir talnagrundvöll þess. Yfirlitið sýnir uppruna allra fjárheimilda ársins 2007, fyrir ríkissjóð í heild og einstök viðfangsefni, þ.e. fluttar stöður fjárheimilda frá fyrra ári, fjárveitingar í fjárlögum og fjáraukalögum, millifærðar heimildir innan ársins og breytingar á fjárheimildum vegna frávika ríkistekna samkvæmt þessu frumvarpi. Því næst eru tilgreind útgjöld samkvæmt ríkisreikningi og loks staða fjárheimilda í árslok, þ.e. mismunur fjárheimilda og reikningsfærðra útgjalda.

Heildarfjárheimildir ársins 2007 námu 409,9 milljörðum kr., útgjöld samkvæmt ríkisreikningi voru 397,5 milljarðar og fjárheimildastaða í árslok 2007 var því jákvæð um 12,4 milljarða kr. Í frumvarpinu er að vanda lagt til að stöður fjárheimilda í árslok verði annaðhvort felldar niður, eins og fram kemur í 2. gr. frumvarpsins, eða fluttar til næsta árs, eins og fram kemur í fylgiskjali 1 með frumvarpinu.

Í 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á fjárheimildum stofnana og verkefna vegna frávika markaðra ríkistekna frá áætlun fjárlaga og fjáraukalaga, samanber nánari skiptingu í sundurliðun 1. Alls er lagt til að fjárheimildir hækki um 2.117,7 millj. kr. samkvæmt þessu uppgjöri á fjármögnun verkefna með mörkuðum ríkistekjum. Nánari skipting niður á fjárlagaliði og viðfangsefni er sýnd í sundurliðun 1. Er hér leitað eftir heimild Alþingis fyrir því að ráðstafa megi mörkuðum skatttekjum og öðrum ríkistekjum stofnana í samræmi við það hverjar tekjurnar urðu samkvæmt uppgjöri ríkisreiknings eða hver metin fjárþörf reyndist vera við skil ríkissjóðs á mörkuðum tekjum til viðkomandi stofnana.

Almennt gildir að útgjaldaheimildir fjárlagaliða hækka hafi lögboðnar ríkistekjur til fjármögnunar á útgjöldunum verið meiri en áætlað var í fjárlögum, en lækka hafi tekjurnar verið minni. Þetta er þó ekki algilt því ekki eru lagðar til breytingar á fjárheimildum stofnana í þeim tilvikum þegar ekki er beint samband milli útgjaldaþarfar stofnunar og fjármögnunar á þann veg að breytingar í tekjum hafi samsvarandi bein áhrif á kostnað.

Í 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til niðurfellingar á stöðum fjárheimilda í árslok. Er þar bæði um að ræða ónotaðar fjárveitingar og gjöld umfram heimildir. Nánari skipting niður á fjárlagaliði og viðfangsefni er sýnd í sundurliðun 2. Gert er ráð fyrir að á rekstrargrunni falli niður samtals 7.054,7 millj. kr. umframgjöld en að á greiðslugrunni falli niður 6.770,3 millj. kr. í afgangsheimildum. Þessi mikli munur sem er á milli rekstrargrunns og greiðslugrunns hvað hinar niðurfelldu stöður varðar stafar að stærstum hluta af því að niður falla háar stöður sem ekki hafa áhrif á útgreiðslur, svo sem stöður á liðunum Lífeyrisskuldbindingar og Afskrifaðar skattkröfur.

Í samræmi við ákvæði 37. og 45. gr. laga um fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997, er í fylgiskjali 1 með frumvarpinu birt yfirlit yfir stöðu fjárheimilda í árslok 2007 sem færast yfir til ársins 2008. Gert er ráð fyrir að í heildina tekið flytjist tæplega 19,5 milljarða kr. jákvæð fjárheimildastaða yfir til ársins 2008. Sú fjárhæð samsvarar 4,5% af fjárveitingum fjárlaga 2008.

Ráðstafanir á fjárheimildastöðum í árslok byggja á viðmiðunarreglum þar sem einkum er litið til þess hvort útgjöld séu bundin, t.d. af lögum eða samningum, eða frekar á ábyrgð tiltekins stjórnsýsluaðila sem viðhaft geti virka útgjaldastýringu. Í sumum tilvikum kann að vera álitamál hvort fella beri niður stöður einstakra fjárlagaliða eða flytja til næsta árs, og við gerð sérhvers lokafjárlagafrumvarps þarf að leggja mat á þessi tilvik. Ræðst niðurstaðan m.a. af því hvort talið sé að viðhafa megi stýringu á útgjöldum liðarins þrátt fyrir að tilefni útgjaldanna séu þess eðlis að þau teljist lögbundin.

Tilgangurinn með því að flytja fjárheimildastöður yfir áramót er einkum sá að hvetja ráðuneyti og stofnanir til aðhalds og styrkari fjármálastjórnar til lengri tíma litið. Með því að flytja afgangsheimildir stofnana yfir áramót hefur horfið sú tilhneiging sem gætti í eldra kerfi, að forstöðumenn leituðust við að eyða öllum fjárheimildum fyrir lok hvers árs. Áætlanagerð hefur batnað og stjórnendur líta til lengri tíma en eins árs við stefnumörkun sína. Leitast er því við að fækka þeim liðum þar sem staða er að jafnaði felld niður í árslok, a.m.k. í þeim tilfellum þar sem mögulegt er talið að gera megi ráðstafanir til að bregðast við frávikum í útgjöldum.

Í árslok 2007 voru 59 fjárlagaliðir með uppsafnaðan halla sem nam meira en 4% af fjárheimildum og hjá 30 þessara liða var hallinn yfir 10% af fjárheimildum. Liðum með svo mikinn halla hefur þó sem betur fer farið fækkandi. Í árslok 2006 voru 70 liðir með halla umfram 4%, þar af 42 með yfir 10% halla, og í árslok 2005 voru 82 fjárlagaliðir með halla umfram 4%, þar af 65 með halla yfir 10%. Þó er ljóst að taka verður vanda af þessum toga föstum tökum, ekki síst ef um er að ræða halla á hefðbundnum rekstri ríkisstofnana. Mikilvægt er að forstöðumenn og ráðuneyti grípi til aðgerða strax og ljóst er að rekstur stefnir umfram fjárheimildir. Við undirbúning fjárlaga þurfa ráðuneytin einnig að búa svo um hnúta að tekið sé á vanda þeirra stofnana sem ár eftir ár fara fram úr fjárveitingum, annaðhvort með endurskipulagningu á rekstri eða breytingum í forgangsröðun fjárveitinga.

Ég hef hér, herra forseti, farið yfir helstu þætti frumvarpsins. Með því eru lagðar fyrir Alþingi niðurstöður úr rekstri ríkissjóðs gagnvart fjárheimildum á árinu 2007 og vísast í því sambandi til greinargerða í fjáraukalögum og ríkisreikningi um meginatriði í framvindu ríkisfjármálanna og helstu frávik í tekjum og gjöldum. Einnig hefur Ríkisendurskoðun lagt fyrir Alþingi skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 2007 og um hana hefur verið fjallað í fjárlaganefnd. Ég tel því ekki ástæðu til að fara yfir einstök atriði í frumvarpinu og legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjárlaganefndar.