136. löggjafarþing — 101. fundur,  12. mars 2009.

skylda lánastofnana í meirihlutaeigu ríkisins til að leita tilboða í innleyst fyrirtæki.

194. mál
[15:59]
Horfa

Flm. (Grétar Mar Jónsson) (Fl):

Herra forseti. Það má byrja á því að segja að prófkjör virðast víða vera í gangi núna, því ekki eru þingmenn staddir í þingsal. Ég mæli hér fyrir svohljóðandi tillögu til þingsályktunar um skyldu lánastofnana í meirihlutaeigu ríkisins til að leita tilboða í innleyst fyrirtæki og/eða rekstrareiningar:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast, með tilmælum og lagasetningu, til um að lánastofnunum í meirihlutaeigu ríkisins verði jafnan skylt að leita tilboða við sölu á fyrirtækjum sem lánastofnunin innleysir að hluta eða í heild, svo og við sölu á einstökum rekstrareiningum viðkomandi rekstraraðila. Skal jafnan tekið hæsta tilboði enda séu viðunandi tryggingar lagðar fram fyrir greiðslu kaupverðs.“

Í greinargerðinni stendur:

Við hrun íslenska bankakerfisins hefur fjöldi fyrirtækja og rekstrareininga komist á forræði skilanefnda bankanna eða stjórna nýju bankanna, sem urðu til eftir hrun þeirra eldri. Nú er m.a. unnið að því að ákveða hvað gera skuli við innleystar eignir sem bankarnir hafa tekið í sína vörslu. Það hlýtur að vera keppikefli að hámarka verðið sem fæst fyrir þessar eignir. Að undanförnu hafa borist fréttir af því að skilanefndir ætli sér að selja einstakar eignir án þess að bjóða þær út á almennum markaði, m.a. berast fréttir af því að einstaklingar sem höfðu með þessar eignir að gera með einum eða öðrum hætti gangi nú fyrir þegar endursala þeirra er ákveðin. Slíkt er að mati flutningsmanna andstætt góðu viðskiptasiðferði.

Með þessari aðferð er sniðgengin sú leið að leita eftir hæsta verði, auk þess sem áhugasömum kaupendum er mismunað. Með þessari þingsályktunartillögu er leitast við að koma í veg fyrir að ríkissjóður Íslands verði af umtalsverðum upphæðum með því að reyna ekki að lágmarka þann skaða sem þegar er orðinn í efnahagsfárinu.

Þessari þingsályktunartillögu vil ég að verði vísað til efnahags- og skattanefndar að lokinni fyrri umr. en megintilgangurinn með tillögunni er að reyna að minnka skaðann sem ríkið verður fyrir í þessari miklu gjaldþrotahrinu, sem hefur átt sér stað á síðustu mánuðum og mun jafnvel aukast á næstu mánuðum.

Meðflutningsmenn mínir eru hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins og hv. þm. Jón Magnússon fyrrverandi félagi okkar í Frjálslynda flokknum

Ég vona að tillagan fái afgreiðslu í efnahags- og skattanefnd og verði samþykkt sem ályktun þingsins fyrir þinglok.