136. löggjafarþing — 102. fundur, 13. mars 2009.
tilkynning frá þingmanni.
Herra forseti. Ég vil tilkynna Alþingi að ég er genginn úr flokki Samfylkingarinnar og hef jafnframt gengið til liðs við Frjálslynda flokkinn. Meginástæða þess er að áherslur mínar á sviði sjávarútvegsmála hafa mun meira vægi í Frjálslynda flokknum en í Samfylkingunni. Að öðru leyti vil ég þakka fólki í Samfylkingunni fyrir góða samfylgd og ég óska þeim alls hins besta.