breytingar á ýmsum lögum um óréttmæta viðskiptahætti.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum á þingskjali 702, vegna innleiðingar á tilskipun 2005/29/EB um óréttmæta viðskiptahætti. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á 16. gr. tilskipunarinnar.
Breytingarnar voru teknar upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 92/2006 frá 7. júlí 2006 um breytingu á XIX. viðauka við EES-samninginn um neytendavernd. Um er að ræða tæknilegar breytingar á tvennum lögum á sviði neytendaréttar vegna innleiðingar á tilskipun um óréttmæta viðskiptahætti.
Hér á eftir geri ég stutta grein fyrir þeim breytingum sem þetta frumvarp felur í sér.
Með innleiðingu á 2. mgr. 16. gr. tilskipunarinnar sem hér um ræðir, felst að breyta þarf lítillega 1. gr. laga nr. 56/2007, um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, en með þeim lögum var veitt lagagildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2006/2004 frá 27. október 2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd og reglugerð um samvinnu um neytendavernd. Eftir samþykkt breytinga á lögunum mun viðauki við framangreinda reglugerð 2006/2004/EB ekki lengur hafa lagagildi og yrði því ekki birtur sem fylgiskjal með framangreindum lögum nr. 56/2007. Innleiðing síðari breytinga á viðaukanum, sem geymir upptalningu á ákveðnum EES-gerðum á sviði neytendamála, yrði eftir breytinguna í formi reglugerða.
Til þess að innleiða 1. mgr. 16. gr. tilskipunarinnar þarf að breyta tilvísun til tilskipunar Evrópuráðsins í 1. tölulið 1. gr. laga nr. 141/2001, um lögbann og dómsmál, til að vernda heildarhagsmuni neytenda. Nú er í 1. tölulið 1. gr. vísað til tilskipunar ráðsins 84/450/EB frá 10. september 1984 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna um villandi auglýsingar. Eftir samþykkt þessa lagafrumvarps verður hins vegar vísað til tilskipunar 2005/29/EB frá 11. maí 2005 um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum. Ákvæði um villandi auglýsingar eru innleidd í V. kafla laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, með síðari breytingum, og er nauðsynlegt að gera þessa breytingu þar sem tilskipun 2005/29/EB um óréttmæta viðskiptahætti, felur í sér breytingar á umræddum ákvæðum tilskipunar 84/450/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna um villandi auglýsingar.
Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. viðskiptanefndar til frekari umfjöllunar.