136. löggjafarþing — 104. fundur,  16. mars 2009.

náms- og starfsráðgjafar.

422. mál
[17:02]
Horfa

Frsm. menntmn. (Einar Már Sigurðarson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um náms- og starfsráðgjafa sem flutt er af menntamálanefnd. Í frumvarpinu eru annars vegar ný lög um náms- og starfsráðgjafa og hins vegar breytingar á öðrum lögum, sem leiðir af þeim lögum, þ.e. lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla.

Markmið frumvarpsins er í raun og veru að lögvernda starfsheitið náms- og starfsráðgjafi. Með lögverndun þess er verið að tryggja ákveðin gæði þjónustu, sinna hagsmunum ráðþega og að mikilvæg sér- og fagþekking skili sér inn í menntakerfið, út á vinnumarkaðinn og til almennings. Sá sem leitar aðstoðar náms- og starfsráðgjafa getur í skjóli lögverndunar verið þess fullviss að sá sem þjónustuna veitir hafi tilskilda menntun og fagþekkingu. Hér er fyrst og fremst verið að huga að heill nemenda og þeirra er njóta þjónustu náms- og starfsráðgjafa jafnframt því að tryggja fagleg vinnubrögð stéttarinnar, auk þess sem náms- og starfsráðgjafar og fagið sjálft getur stuðlað að öflugri tengingu milli skóla og atvinnulífs.

Náms- og starfsráðgjafar starfa m.a. í skólum, í fyrirtækjum og á atvinnumiðlunum. Starf þeirra er breytilegt eftir því hvar þeir starfa en byggist þó að grunni til á því sameiginlega markmiði að stuðla að velferð einstaklinga með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Markmið náms- og starfsráðgjafar er að efla vitund einstaklinga um viðhorf sín, áhuga og hæfileika þannig að þeir fái notið sín í námi og starfi. Náms- og starfsráðgjöf hefur fest sig í sessi í menntakerfinu frá því að nám í námsráðgjöf hófst árið 1991 við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Fagleg þekking og vinnubrögð liggja að baki náms- og starfsráðgjöf og starfsheitið náms- og starfsráðgjafi vísar til þess að sá hinn sami veitir faglega ráðgjöf á grundvelli sértækrar menntunar sinnar. Meginverkefni náms- og starfsráðgjafa í grunn- og framhaldsskólum er að aðstoða nemendur við náms- og starfsval og veita ráðgjöf meðan á námi stendur. Náms- og starfsráðgjafi er trúnaðarmaður og talsmaður nemandans. Mikilvægt er að allir nemendur hafi aðgang að þjónustu ráðgjafa í sínum skóla. Það er mikilvægt að sérþekking náms- og starfsráðgjafa skili sér að fullu inn í grunn- og framhaldsskóla landsins og því nauðsynlegt að breyta lögum um grunn- og framhaldsskóla samhliða frumvarpi þessu á þann veg að einungis sé heimilt að ráða til starfa í skólum landsins náms- og starfsráðgjafa sem uppfylla skilyrði laganna.

Með frumvarpinu er því lagt til að ákvæði um náms- og starfsráðgjafa verði tekin upp í löggjöf um grunnskóla og framhaldsskóla. Á þann hátt er tryggt að einungis þeir sem uppfylla lagaskilyrði eigi kost á að sinna náms- og starfsráðgjöf í grunn- og framhaldsskólum landsins. Löggjöfin um grunnskóla og framhaldsskóla í núverandi mynd ber þess merki að starfsheitið náms- og starfsráðgjafi hefur ekki verið lögverndað og því ótryggt að fagleg náms- og starfsráðgjöf sé til staðar í skólum landsins. Með þessari breytingu er verið að tryggja ákveðin gæði þjónustu, sinna hagsmunum þeirra sem þjónustuna þiggja og tryggja að sér- og fagþekking skili sér inn í menntakerfið. Sá sem leitar aðstoðar náms- og starfsráðgjafa getur í skjóli lögverndunar verið þess fullviss að sá sem þjónustuna veitir hafi tilskilda menntun og fagþekkingu. Hér er fyrst og fremst verið að vinna að hag nemenda og þeirra er njóta þjónustu náms- og starfsráðgjafa jafnframt því að tryggja fagleg vinnubrögð stéttarinnar.

Með frumvarpi þessu er ekki ætlunin að breyta réttarstöðu þeirra sem eru starfandi við gildistöku laganna en uppfylla ekki lagaskilyrði til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi. Þannig er gert ráð fyrir að þeir geti óskað eftir staðfestingu menntamálaráðherra á leyfi um rétt til að bera starfsheitið náms- og starfsráðgjafi.

Með frumvarpinu er einnig verið að gæta þeirra skuldbindinga sem Ísland hefur tekið á sig með þátttöku í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Þannig er gert ráð fyrir að réttur til starfsheitis geti stofnast á tvennan máta: Við útgáfu leyfis af hálfu ráðherra eða við staðfestingu ráðherra á sams konar leyfi sem gefið hefur verið út erlendis.

Þá er lagt til að ein matsnefnd verði starfrækt fyrir starfsheiti náms- og starfsráðgjafa. Þannig sé á einum stað fjallað um umsóknir sem vafi er um. Með þeim hætti verður stjórnsýslan í tengslum við veitingu leyfis skilvirkari. Hlutverk matsnefndar er að úrskurða um rétt aðila til að nota starfsheitið þegar um vafatilvik er að ræða. Þá skal leitað eftir samráði matsnefndar við staðfestingu á leyfi samkvæmt umsóknum ríkisborgara innan Evrópska efnahagssvæðisins eða Færeyja eða ríkisborgara aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu. Lagt er til að nefndin veiti umsögn um leyfisveitingu en að lokaákvörðun verði tekin af menntamálaráðherra.

Frú forseti. Það má segja að verði þetta frumvarp að lögum sé búið að tryggja jafnræði allra þeirra stétta sem starfa í skólum landsins vegna þess að aðrir starfshópar sem þar starfa hafa lögverndun og þess vegna er afar brýnt að þetta skref verði nú tekið.

Frú forseti. Að lokum legg ég til að frumvarp þetta verði, að lokinni þessari umræðu, sent til menntamálanefndar.