136. löggjafarþing — 104. fundur,  16. mars 2009.

náms- og starfsráðgjafar.

422. mál
[17:16]
Horfa

Frsm. menntmn. (Einar Már Sigurðarson) (Sf):

Frú forseti. Bara örstutt hér í lokin. Ég fagna þeim góðu undirtektum sem þetta frumvarp hefur fengið í umræðunum. Ég held að hér sé um mikilvægt mál að ræða fyrir skólakerfið.

Fólk getur auðvitað haft mismunandi skoðanir á því hvort yfir höfuð eigi að lögvernda störf og það er umræða sem vert er að fara í, en við erum með það kerfi að lögvernda störf og höfum lögverndað flest störf í skólum landsins. Þess vegna er mjög óeðlilegt að hópur eins og náms- og starfsráðgjafar sitji ekki við sama borð og aðrir hópar í þeim efnum.

Það er hárrétt eins og hér hefur verið bent á í umræðunum að leið er opnuð fyrir þá sem hafa starfað við þetta fram að þessu án þess að vera með þá menntun sem hér er gerð krafa um. Þeir geta sótt um viðurkenningu til matsnefndarinnar og þá verður farið yfir þau mál. Ég held að þetta sé afar mikilvægt til að tryggja þá þekkingu áfram í kerfinu sem þar hefur verið. Það má segja að með þessu séum við að stilla öllum hópum sem starfa í grunnskólunum inn á sömu leið og þetta er algjörlega sambærilegt við lögverndun kennaranna, sama fyrirkomulag er sett á þetta þannig að ég trúi ekki öðru en að sú umræða sem hér hefur átt sér stað endurspegli vilja þingheims í málinu og treysti því að við náum að ljúka málinu fyrir þinglok og ég veit að ekki mun standa á menntamálanefnd í þeim efnum.