136. löggjafarþing — 105. fundur,  17. mars 2009.

kostnaður við stjórnlagaþing.

[13:45]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Ég tel að við verðum að styrkja hv. Alþingi. Við sitjum nefnilega núna á stjórnlagaþingi en stjórnlagabreytingar eru aukaatriði í störfum þingsins og þegar almenningur greiðir atkvæði um stjórnlagabreytingar er það líka aukaatriði fyrir kjósendur. Þessu verðum við að breyta.

Ég tel, og það vantar inn í kostnaðarmat fjármálaráðuneytisins, að ef sett yrði á laggirnar stjórnlagaþing, þar sem sæti kannski 31 maður, og það starfaði í sex mánuði og gerði ekkert annað ætti það að nást og þá er kostnaðurinn orðinn miklu minni.

Ég tel mjög mikilvægt að gjörbreyta stjórnarskránni, hún er mjög úrelt. Þeir sem hafa lesið hana sjá það. Það sem núverandi þing ætti að gera, og þá vísa því til þeirrar nefndar sem hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir veitir forstöðu, er að breyta 79. gr. einni, þannig að breyting á stjórnarskrá sé ekki eins þunglamaleg og er í dag og við þurfum ekki að bíða í fjögur ár eftir því að breyta stjórnarskránni. Við þurfum eingöngu að breyta 79. gr. þannig að um stjórnlagabreytingar yrði kosið í almennri kosningu þjóðarinnar og það gætum við samþykkt núna. Ég hugsa að það næðist samstaða um það. Síðan gætum við samþykkt á sumarþingi breytingar um stjórnlagaþing og annað slíkt og sent það til þjóðarinnar í júní/júlí til atkvæðagreiðslu. Þá verða allar stjórnlagabreytingar miklu liprari.

Hins vegar vil ég taka það fram að hugmyndir sem hafa komið fram hingað til, um að einungis 25% þjóðarinnar þurfi að samþykkja stjórnlagabreytingu, það þykir mér allt of lágt og allt of mikil lítilsvirðing við stjórnarskrána. Ég vil hafa það helst 50% en kannski mundi ég sætta mig við 33%.