vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Stundum var sagt í minni sveit þegar menn fluttu góð tíðindi: Guð láti gott á vita. Ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður sé spámannlega vaxinn og að verðbólgan muni fara jafnhratt niður og hann segir að hún muni gera.
Hins vegar lækkar verðbótareikningurinn ekki á sama tíma og verðbólgan lækkar. Hann er reiknaður alla vega tvo mánuði fram í tímann. Verði verðbótareikningurinn um mitt ár kominn niður fyrir 5% er það bara í fínu lagi. (Gripið fram í.) Þá er búið að ná þeim markmiðum sem við erum að reyna að setja í þessu frumvarpi, að fólk borgi ekki hærri vexti og verðtryggingu af húsnæðislánum sínum en 9–11% eftir því hvað vextirnir eru háir á viðkomandi lánum. Það er það sem við leggjum til, til að reyna að stöðva álögur á fólkið í þeirri stöðu sem nú er.
Fari svo að verðbólgan verði komin niður fyrir 5% í ágúst hættir biðreikningur að myndast. Þá fer ekkert inn á hann vegna þess að þá er maður kominn niður fyrir viðmiðunina. Þá er vaxtabyrðin hjá fólki væntanlega komin niður fyrir 10%.